6.7 C
Selfoss
Home Fréttir Okkur þykir vænt um hvali og bækur

Okkur þykir vænt um hvali og bækur

0
Okkur þykir vænt um hvali og bækur

Bókasafnið í Árborg hefur alltaf haft plastpoka á lager þar sem starfsfólk hefur talið að það geti ekki sent fólk út í rigningu með fínu bækurnar úr safninu sem þeim þykir svo vænt um.

„Okkur þykir líka vænt um hvali og fugla, sjóinn og náttúruna alla og eigum erfitt með staðreyndir sem unga fólkið okkar er að kynna okkur í skólaverkefnunum sínum þar sem kemur fram að hver plastpoki hefur ca. 20 mínútna notaglidi þ.e. á leið úr búðinni (bókasafninu) og heim svo verður hann rusl eða heldur utan um rusl og það tekur jörðina fleiri hundruð ár að losna við hann,“ segir Heiðrún D. Eyvindardóttir, forstöðumaður Bókasafns Árborgar.

Hún bætir við: „Svo nú ætlum við að biðja ykkur sem eigið hreina og fína plastpoka heima sem þið getið ekki notað í annað, að koma með þá til okkar og við bjóðum kúnnunum okkar að endurnýta poka. Er það ekki brilljant?“

Heiðrún segir að þau hafi rætt þetta við fyrirtæki í bænum og VISS sem þau vissu að saumar taupoka. „Þau ætla að láta okkur hafa slíka gæðagripi sem við getum selt fyrir þau á vægu verði. Þannig hljótum við í sameinnigu að geta minnkað plast-notkunina hjá okkur um a.m.k. helming – haldið þið það ekki? “