5.6 C
Selfoss

Byssusýning í Veiðisafninu Stokkseyri

Vinsælast

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í samvinnu við verslunina Hlað, verður haldin laugardaginn 25. og sunnudaginn 26. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 á Stokkseyri. Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði. Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a. úr einkasöfnum.

Thomas Danielsen frá Blaser í Þýskalandi verður á staðnum ásamt Arnfinni Jónssyni byssusmiði sem kynnir sýna vinnu. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur frá Marocchi og Blaser. Einnig sjónaukar frá Zeiss og Meopta ásamt hljóðdeyfum frá Hausken, Devik og Freyr, endurhleðsluvörum frá Hornady, Redding, Lyman, Berger Bullets o.fl. Þá verða til sýnis skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík svo eitthvað sé nefnt. Skotvís verður einnig með kynningu á sinni starfsemi. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið.

Nýjar fréttir