3.4 C
Selfoss

BES sigraði Suðurlandsriðil Skólahreystis

Vinsælast

Þann 15. mars sl. fór fram Suðurlandsriðill Skólahreystis í íþróttahöll Stjörnunar í Garðabæ. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES) sigraði riðilinn með 57 stigum og komst þar af leiðandi í úrslitakeppnina sem fram fer í Laugardalshöll 26. apríl.

Sannarlega stórglæsilegur árangur hjá liði BES en skólinn náði 4. sæti í fyrra. Nemendur BES hafa æft linnulaust fyrir keppnina í vetur undir handleiðslu Vigfúsar Helgasonar íþróttakennara. Lið skólans skipa Halldór Ingvar Bjarnason, Símon Gestur Ragnarsson, Bríet Bragadóttir, Lilja Atladóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Eyþór Ás Þórisson og Hrafn Arnason.

Heildarúrslit urðu þau að Grunnskólinn á Hellu varð í öðru sæti með 53 stig og Bláskógaskóli varð í 3. sæti með 52,5 stig. Síðan komu Sunnulækjarskóli með 49 stig, Flúðaskóli með 44 stig, Kirkjubæjarskóli með 33,5 stig, Hvolsskóli með 28 stig, Grunnskólinn í Hveragerði með 22,5 stig, Flóaskóli með 22 stig og Víkurskóli með 17,5 stig.

Undirbúningur fyrir lokakeppnina er þegar hafinn en sú keppni verður sýnd í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu 26. apríl næstkomandi.

Random Image

Nýjar fréttir