2.8 C
Selfoss

Tónleikar og skemmtun kórs FSu í sal Fjölbrautaskólans

Vinsælast

Þann 23. mars nk. kl. 20:00 mun kór Fjölbrautaskóla Suðurlands halda létta tónleika og skemmtikvöld í sal skólans. Auk kórsins munu stíga á stokk nokkrir hæfileikaríkir nemendur og kennarar skólans. Kórinn fær einnig til sín aðra góða gesti. Má þar nefna t.d. þá Bítlabræður Daníel og Bjarna en þeir hafa verið að gera það gott undanfarið þar sem þeir leika og syngja lög eftir bresku hljómsveitirnar The Beatles og Queen. Einnig mun nýstofnaður Karlakór Hveragerðis mæta á svæðið og taka nokkur vel valin lög en þeir hafa einmitt vakið töluverða eftirtekt undanfarið fyrir líflega og hressilega framkomu.

Þetta verður án efa hin besta skemmtun og er fólk eindregið hvatt til að taka kvöldið frá og eiga notalega stund með kórnum og gestum hans og um leið styrkja kórinn. Í boði verður kaffi, kökur og alls konar kræsingar.

Það kostar litlar 1000 kr. á þessa skemmtun (engin posi ) og mun allur ágóði renna til Kórs FSu þar sem hann heldur utan í tónleikaferð til Írlands þann 17. april næstkomandi. Þar mun kórinn hitta fyrir írskan skólakór, halda æfingabúðir saman og halda síðan sameiginlega tónleika í Dublin.

Random Image

Nýjar fréttir