5.6 C
Selfoss

Ferðaáætlun Ferðafélags Árnesinga hafin

Vinsælast

Ferðaáætlun Ferðafélags Árneesinga hófst með ferð á Inghól 7. janúar sl. Síðan var gengið á Blákoll og Syðri og Nyrðri Eldborg 28. janúar og svo Stapafelll í Grafningi 18. febrúar sl. Næsta ganga er Reykjanes, Hafnir en hún verður farin laugardaginn 4. mars. Brottför í flestar ferðir er frá Samkaupum Selfossi. Brottfarartími er auglýstur á heimasíðu/fésbók félagsins þegar nær dregur. Þátttaka er ókeypis, nema annað sé tekið fram.

Ferðaáætlun Ferðafélags Árnesinga 2017:
4. mars  Reykjanes, Hafnir 2 skór – Falleg strandganga. Klappir, sandur og grýtt á köflum.Vegalengd 16–18 km Engin hækkun tími 5 klst.
25. mars  Stóri Hrútur Reykjanesi 2 skór – Gengið um Langahrygg á Stóra Hrút.Vegalengd 9–10 km hækkun 450 m tími 4 klst.
8. apríl  Gráuhnúkar, Stóridalur, Lakahnúkar 2 skór – Lagt af stað frá Skíðaskálanum í Hveradölum. Vegalengd 8–9 km hækkun 300 m tími 4 klst.
19. apríl  Ingólfsfjall – óhefðbundið 3 skór – Leikið af fingrum fram. Vegalengd 8 km hækkun 500 m tími 3 klst.
6. maí  Þríhyrningur 3 skór – Fallegt útsýni. Nokkuð krefjandi ganga. Vegalengd 7,5 km hækkun 600 m tími 3–4 klst.
27. maí  Þórólfsfell 2 skór – Þægilegt göngufjall inn af Fljótshlíð. Hæfir flestum. Vegalengd 6 km hækkun 500 m tími 3 klst.
10. júní  Glymur, Hvalfell í Hvalfirði 3 skór – Falleg gönguleið á mikið útsýnisfjall. Nokkuð krefjandi ganga. Vegalengd 12 km hækkun 800 m tími 4–5 klst
24. júní  Gilsárgljúfur, Kerhnjúkar, Vestriöxl 3 skór – Gengið frá Einhyrnigsflötum inn af Fljótshlíð. Vegalengd 20 km hækkun 700 m tími 7 klst
1. júlí  Úlfljótsvatn, Hveragerði 2 skór – Þægileg ganga. Melar og móar. Vegalengd 16–18 km hækkun 450 m tími 5 klst.
15. júlí  Blátindur í Skaftafelli 4 skór – Útsýni af Blátindi er stórkostleg í góðu veðri. Hjúkurinn, Dyrhamar, Skaftafellsfjöllin. Þumall, Færniseggjar, Mýrdalsjökull og allt hitt. Þetta er ein fegursta tindasýn sem hægt er að upplifa á Íslandi. Vegalengd 25 km hækkun 1100 m tími 10 klst.
12. ágúst  Umhverfis Högnhöfða 2 skór – Gengið frá Brúarárskörðum um sanda og mólendi. Vegalengd 17 km Hækkun 300m tími 6 klst.
26. ágúst  Fjallabak 4 skór – Krefjandi ganga um fallegt landslag, mjóir og brattir hryggir og jökulár. Vegalengd 26 km Hækkun um 1100 m tími 9 klst.
9. september  Ármannsfell 3 skór – Þægilegt göngufæri. Gott útsýnisfjall. Vegalengd 11 km hækkun 600 m tími 5 klst.
23.–24. september  Þórsmörk – Gengið um Þórsmörk báða dagana.
14. október  Þjórsárdalur 2 skór – Leikin af fingrum fram. Nánar auglýst í viðburði.
4. nóvember  Laugarvatnsfjall 2 skór – Gengið frá Laugarvatni á Laugarvatnsfjall. Vegalengd 8 km hækkun 600 m tími 3 klst.
25. nóvember  Skálafell Hellisheiði 2 skór – Upphaf göngu vestan við Riftún í Ölfusi. Vegalengd 11 km hækkun 500 m tími 4 klst.
13. desember  Jólagleði í Hellisskógi – Hefðbundin ganga og skemmtun.

ATH. Ferðafélag Árnesinga tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farðegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa sér ferða- og slysatryggingu.
Heimasíða: www.ffar.is.
Fésbók: Ferðafélag Árnesinga.
Netfang: ffarnesinga@gmail.com.
Sími: 897 0769.

Nýjar fréttir