0.6 C
Selfoss

Garðfuglahelgi Fuglaverndar framundan

Vinsælast

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 27. til 30. janúar nætkomandi. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma dagana 27. til 30. janúar. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir.

Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein.

Nánari upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar og í Garðfuglabæklingi félagsins sem má fá á skrifstofu Fuglaverndar. Upplýsingar um garðfuglahelgi er að finna á vef Fuglaverndar: fuglavernd.is og Garðfuglavefnum www.veidivotn.is/gardfuglar/.

Upplýsingar um verkefnið er að finna á vef Fuglaverndar: fuglavernd.is
Á vef Fuglaverndar má skrá niðurstöður rafrænt og einnig er hægt að hlaða niður hjálparblaði talningarinnar, sem er með myndum af algengum fuglategundum og er það tilvalið fyrir börn og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í fuglaskoðun.

Fuglavernd eru frjáls félagasamtök um verndun fugla og búsvæði þeirra. Fuglavernd telur um 1300 félagsmenn. Fuglavernd er aðili að samtökunum BirdLife International sem vinna að verndun fugla og náttúrusvæða í 120 löndum.

Nýjar fréttir