10 C
Selfoss

50 stöðugildi burt úr Sveitarfélaginu Árborg og fólk flutt hreppaflutningum

Vinsælast

Stjórn stéttarfélagsins Bárunnar birti á heimasíðu sinni í dag ályktun vegna dvalar- og hjúkrunarheimilisins Kumbaravogs Stokkseyri. Þar segir að 50 stöðugildi fari burt úr Sveitarfélaginu Árborg og fólk sé flutt hreppaflutningum.

Ályktunin er eftirfarandi:
„Stjórn Bárunnar harmar þá stöðu sem komin er upp varðandi hjúkrunarheimilið á Kumbaravogi. Virðingarleysið við heimilisfólkið er takmarkalaust og er það flutt án nokkurs fyrirvara til dvalar á öðrum stöðum. Í ljósi stöðunnar hlýtur að vera forgangsverkefni að flýta nýrri byggingu hjúkrunarheimilis í Árborg og skorar stjórn félagsins á stjórnvöld að öryggi þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda verði tryggt svo sómi verði að.

Einnig er það er alvarleg staða þegar einn af stærri vinnustöðum í sveitarfélaginu lokar og 50 manns missa vinnuna í einu vetfangi. Það eru 50 störf sem tapast í umönnun aldraðra, meirhlutinn konur. Mikil óvissa ríkir um starfslok þeirra starfsmanna sem starfa á Kumbaravogi. Stjórn Bárunnar, stéttarfélags hvetur viðkomandi aðila sem bera ábyrgð á starfslokum og velferð starfsmanna að þeim verði sómi sýndur og farið eftir þeim reglum sem gilda á vinnumarkaði.

Stjórn Bárunnar, stéttarfélags, hvetur yfirvöld í Árborg að leita allra leiða til þess að tryggja ný störf í sveitarfélaginu í stað þeirra sem þarna hafa tapast.“

Nýjar fréttir