10.6 C
Selfoss

Það á að hlusta á ungt fólk – ekki bara rétt fyrir kosningar

Vinsælast

Við höfum tekið eftir því að ungmennaráð í nágrannasveitarfélögum okkar og víðar hafa komið reglulega fyrir bæjarstjórn og algengt er að þau haldi 8-12 fundi á hverju ári til þess að fjalla um málefni sveitarfélagsins. Undanfarin ár hefur unga fólkið í Ölfusi ekki haft jafn öfluga rödd í stjórnsýslu sveitarfélagsins eins og hjá þeim fyrirmyndarsveitarfélögum sem við horfum til. Í því samhengi má nefna Höfn í Hornafirði, Kópavog og Reykjavík. Ungmennaráð Reykjavíkurborgar er eitt það þróaðasta. Það fundar reglulega, hefur formlega tengingu við velferðarráð og borgarstjórn og fulltrúar fá að taka til máls á fundum. Mikil áhersla er á að ráðgjöf þeirra hafi raunveruleg áhrif.

Hér fyrir neðan höfum við frekar skýra mynd sem sýnir fjölda þeirra funda sem ungmennaráð Ölfuss hefur haldið frá árinu 2016. Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins Ölfuss er ungmennaráð til ráðgjafar fyrir bæjarstjórn um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu skv. 2. mgr. 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Ráðið starfar samkvæmt erindisbréfi sem er reyndar ekki að finna á vef sveitarfélagsins að okkur sýnist.

Okkur finnst mikilvægt að leggja meiri áherslu á unga fólkið í stjórnsýslu sveitarfélagsins heldur en undanfarið hefur verið gert. Samfylkingin og félagar vilja bæta úr þessu og það fljótt, og passa að ungt fólk fái aftur sæti við borðið.

Barnvænt sveitarfélag

Eins og sjá má á vef Barnvænna sveitarfélaga er Ölfus ekki Barnvænt sveitarfélag. Til þess að sveitarfélag geti kallað sig Barnvænt sveitarfélag þarf að klára innleiðinguna. Eins og kemur fram á vef sveitarfélagsins samþykkti bæjarstjórn Ölfuss einróma að hefja innleiðingu 26. mars árið 2020, fyrir 6 árum síðan. Í sömu fundargerð segir líka að innleiðingarferlið taki tvö til þrjú ár en enn hefur það ekki tekist 6 árum síðar. Samfylkingin og félagar í Ölfusi ætla að klára innleiðingu á verkefninu Barnvænt sveitarfélag hratt og vel. Það felur í sér að réttindi, velferð og rödd barna verður í forgangi í allri stefnumótun og ákvarðanatöku sveitarfélagsins.

Innleiðingarferli Barnasáttmálans er ferli sem tekur tvö til þrjú ár og skiptist í átta skref, sem sveitarfélag stígur með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna. Að þeim tíma liðnum, getur sveitarfélagið sótt um viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi að undangenginni úttekt. Til að viðhalda viðurkenningunni þarf sveitarfélagið að halda innleiðingunni áfram, setja sér ný markmið og óska eftir nýju mati á tveggja ára fresti.

Öflugt ungmennaráð sem hefur raunverulega rödd

Þau sveitarfélög sem sinna ungmennaráðum eins og þau eiga skilið eiga nokkra þætti sameiginlega og viljum við fylgja þeirra fordæmi. Það er óþarfi að finna upp hjólið.

  • Reglulegir, skipulagðir fundir, ekki bara táknrænir.
  • Skýr tenging við bæjarstjórn eða nefndir.
  • Raunveruleg áhrif eins og umsagnir sem skipta máli
  • Stuðningur og eftirfylgni frá stjórnsýslu.
  • Þjálfun og valdefling ungmenna.

Um allt land er ungt fólk í forystusætum á lista Samfylkingarinnar og sama má segja um lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi. Ef þið viljið tryggja að ungt fólk fái rödd í stjórnsýslu sveitarfélagsins Ölfuss þá setjið þið X við S í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Hvað sem þið gerið, þá hvetjum við ykkur til að nýta kosningaréttinn ykkar.

Sigurður Freyr Vestmann Sigurvinsson,
5. sæti á lista Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi

Helga Ósk Gunnsteinsdóttir,
11. sæti á lista Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi

Nýjar fréttir