10.6 C
Selfoss

Björn Thoroddsen með tónleika á Risinu

Vinsælast

Björn Thoroddsen verður með tónleika á Risinu á Selfossi fimmtudaginn 30. apríl, sem jafnframt er alþjóðlegi jazzdagurinn, og hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Með honum leika þeir Jón Rafnsson á bassa og Sigfús Örn Óttarsson á trommur.

Í febrúar síðastliðnum gaf Björn Thoroddsen gítarleikari út plötuna Fridaynight@hringbraut. Platan inniheldur tíu lög í þeim anda sem hefur svifið yfir föstudagsútsendingunum sem Björn hóf á Facebook þegar Covid-faraldurinn skall á samfélaginu,- þar spjallaði hann við fólk og lék alls konar lög, einn síns liðs eða með hljóðfæraleikara eða hljómsveitir með sér og útsendingarnar hefjast alltaf á „It´s Friday night at Hringbraut – wellcome, wellcome, wellcome“.

Á plötunni eru lög sem mörg hver hafa fylgt Birni frá því hann hóf sinn gítarferil, s.s. Hey Joe og Hotel California. Tónleikadagskráin inniheldur flest lögin af þessari plötu auk jazzstandarda og einnig mun hann leika lög af Bítlaplötunni sem hann gerði fyrir nokkrum árum, þar sem hann, einn síns liðs, lék sín uppáhalds Bítlalög.

Tónleikarnir hefjast sem fyrr segir kl. 20.00 og aðgangur er ókeypis.

Nýjar fréttir