Það er gott að búa í Hveragerði og hér er einnig gott að reka fyrirtæki. Í gegnum árin hefur byggst upp fjölbreytt og öflugt atvinnulíf í Hveragerði sem nýtir sér sérkenni svæðisins. Hvort sem um ræðir umönnun, garðyrkju, ferðaþjónustu, framleiðslu, verslun eða aðra starfsemi.
Þrátt fyrir sterkan grunn teljum við á D-listanum að enn séu til staðar fjölmörg sóknarfæri í atvinnulífi sveitarfélagsins. Við hvetjum þig, kæri atvinnurekandi, til að horfa til Hveragerðis sem vettvangs frekari uppbyggingar og tækifæra.
Fyrir öflugra atvinnulíf
Helstu styrkleikar Hveragerðis eru meðal annars:
- Nálægð við höfuðborgarsvæðið og stórskipahöfn í Þorlákshöfn
- Sérstaða bæjarins, meðal annars í tengslum við jarðhita
- Sterkur grunnur í ferðaþjónustu og bjartar horfur í greininni innan sveitarfélagsins
- Gott auglýsingagildi vegna nálægðar við þjóðveginn
- Öflugt samfélag þar sem margir íbúar vilja starfa í heimabyggð
Nái D-listinn kjöri í komandi sveitarstjórnarkosningum munum við leggja ríka áherslu á að styðja við atvinnulífið og ýta þannig undir verðmætasköpun í sveitarfélaginu. Við munum ekki standa í vegi fyrir góðum hugmyndum, heldur vinna með þeim sem vilja byggja upp og þróa atvinnustarfsemi í bænum með skýra sýn til framtíðar. Við teljum mikilvægt að skilyrði skapist fyrir því að fleiri íbúar geti starfað í heimabyggð, byggt upp eigin rekstur, aukið fjölbreytni starfa og þjónustu í vaxandi bæjarfélagi.
D-listinn leggur áherslu á að vera samstarfsaðili atvinnulífsins. Við hyggjumst meðal annars:
- Efla samstarf og samtal við atvinnulífið
- Tryggja nægt framboð atvinnulóða
- Laða að fyrirtæki og stofnanir með fjölbreytta starfsemi
- Nýta sérstöðu bæjarins, sérstaklega í tengslum við jarðhita
- Huga að uppbyggingu atvinnulífs sem samræmist bæjarbrag
Það felast mikil lífsgæði í því að starfa þar sem maður býr. Með breyttum starfsháttum og tækniframförum skapast sífellt fleiri tækifæri til slíks. Við viljum nýta þau tækifæri til fulls og stuðla að því að atvinnulífið í Hveragerði vaxi í sátt við samfélagið. Af ábyrgð fyrir öflugra atvinnulíf.
Sigmar Karlsson, 3. sæti D-listans í Hveragerði
Íris Brá Svavarsdóttir, 6. sæti D-listans í Hveragerði




