17.8 C
Selfoss

Laus störf í Bláskógaskóla á Laugarvatni 

Laus störf í Bláskógaskóla á Laugarvatni 
  • Fullt starf
  • Anywhere

Laus störf í Bláskógaskóla á Laugarvatni 

skólaárið 2025-2026

Bláskógaskóli á Laugarvatni er samþættur leik- og grunnskóli ásamt frístundarstarfi. Nemendur eru á aldrinum 1 árs upp í 10.bekk og þar af eru 26 börn í leikskóladeild og 59 í grunnskóla-deild. Skólinn er Grænfána skóli og leggur áherslu á teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, fagleg vinnubrögð, einstaklingsmiðað nám, útikennslu og heilsueflingu. Uppeldisstefna skólans er ,,Uppeldi til ábyrgðar“ og leikskóladeild vinnur út frá kenningum um ,,Flæði“.

Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar:

Kennara í leikskóladeild í 100% stöðu

Kennara í heimilisfræði í 46 % stöðu

Kennara í myndmennt í 46 % stöðu

Aðstoðarmatráður í 100 % stöðu

Eldhússtörf í leik- og grunnskóladeild

Menntunar- og hæfniskröfur:

Kennarar:

  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi
  • þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
  • Vilji til þátttöku í samstarfi og teymiskennslu.
  • Áhugi á útinámi og að þróa sig í starfi

Allir:

  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Mjög góð færni í samskiptum.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Vilji til þátttöku í samstarfi og teymisvinnu.
  • Vilji til að gera góðan skóla betri.

Í Bláskógaskóla er full vinnustytting, frítt kort í ræktina og frábær starfsmannahópur. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Störfin henta einstaklingum óháð kyni. Ráðið er til starfa frá og með 1.ágúst 2025. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsókn skal fylgja kynningarbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf fyrir starfsheitið kennari.

Nánari upplýsingar gefur Íris Anna Steinarrsdóttir skólastjóri í síma 480-3030. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til skólastjóra á netfangið irisanna@blaskogaskoli.is. Umsóknarfrestur er til 25.maí 2025.

To apply for this job email your details to irisanna@blaskogaskoli.is