9.5 C
Selfoss

Þakklæti og auðmýkt við leiðarlok

Vinsælast

Nú þegar mínu fyrsta og eina tímabili í bæjarstjórn Hveragerðis er að ljúka vil ég þakka íbúum Hveragerðis fyrir það ómetanlega traust sem mér og Okkar Hveragerði var sýnt í síðustu kosningum. Þessi tími hefur verið skemmtilegur og lærdómsríkur, þar sem óteljandi verkefni hafa mótað mig sem manneskju og kennt mér mikilvægar lexíur.

Ferskir vindar og skipulögð stjórnsýsla

Fyrsta árið er mér sérstaklega minnisstætt. Við tókum við keflinu af Sjálfstæðisflokknum eftir 16 ára samfellda valdatíð. Þótt margt gott hafi verið gert á þeim tíma, er það skoðun mín að engum sé hollt að stjórna of lengi. Betur sjá augu en auga segir máltækið, og þegar nýr meirihluti tók við sumarið 2022 blasti við að stjórnsýsla bæjarins þarfnaðist mikilla endurbóta. Málakerfið var svo að segja tómt og verkferlar varla til. Það kostaði mikla vinnu að færa stjórnsýsluna í nútímalegra horf; innleiða verkferla, búa til nýtt skipurit með skýrri verkaskiptingu, tryggja að lögbundinni skjalavistun væri framfylgt o.fl. Þessi vinna tók okkur um það bil hálft kjörtímabil og var vissulega krefjandi, en algjörlega nauðsynleg fyrir nútímalegt samfélag.

Gefandi starf fyrir heildina

Að vinna fyrir samfélagið sitt er eitt það mest gefandi sem maður gerir. Þótt okkur bæjarfulltrúana greini stundum á um aðferðir eða forgangsröðun vil ég trúa því að við séum öll að gera okkar besta á hverjum tíma. Með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Það hefur verið dýrmætt að fá að hafa bein áhrif á nærsamfélagið og ég á eftir að sakna þeirrar vinnu mikið.

Persónulegar fórnir og óvæntar áskoranir

Margt kom mér á óvart á þessu kjörtímabili, bæði jákvætt og neikvætt. Sumt var þess eðlis að erfitt var að meðtaka það eða eiga við það. Það sem kom mér einna mest á óvart – og særði mest – var að fólk sem mér þótti mjög vænt um og var hluti af minni fjölskyldu og lífi kaus að slíta þau tengsl. Ástæðan var sú ein að ég ákvað að taka þátt í bæjarmálum með öðrum en Sjálfstæðisflokknum.

Ég ber engan kala til þessa fólks og vorkenni sjálfri mér alls ekki, þótt mér hafi sárnað á sínum tíma. Sérstaklega fyrir hönd barnanna minna. Þetta er víst partur af því að vera í pólitík. Þá verður svo að vera, því þótt ég víki nú af sveitarstjórnarsviðinu er ég ekki hætt í stjórnmálum. Ég vil leggja mitt af mörkum til að gera samfélagið okkar mannlegra og fjölskylduvænna. Það tel ég að meirihluta Okkar Hveragerðis og Framsóknar hafi tekist og vona innilega að kjósendur leggi sitt af mörkum til að haldið verði áfram á þeirri braut eftir morgundaginn.

Tökum vel á móti nýju fólki

Mitt ákall til nýrra bæjarfulltrúa og íbúa Hveragerðis er einfalt: Tökum vel á móti nýju fólki í brúnni. Það eru allir að leggja sig fram við að gera góðan bæ enn betri. Gagnrýnum málefnin og eigum í málefnalegum rökræðum, en látum það aldrei bitna á börnum bæjarfulltrúa eða fjölskyldumeðlimum þeirra.

Kærar þakkir fyrir samstarfið

Ég kveð bæjarstjórn full þakklætis og auðmýktar. Ég er einstaklega stolt af störfum meirihlutans og þeirri nauðsynlegu uppbyggingu, bæði á innviðum og stjórnsýslu, sem hefur átt sér stað á kjörtímabilinu. Ég á eftir að sakna frábærs starfsfólks Hveragerðisbæjar og allra þeirra vina sem ég hef eignast í sveitarstjórnum víðsvegar um landið. Þar hefur skapast vinátta sem ég finn að mun endast um ókomna tíð.

Kæru Hvergerðingar, takk fyrir öll samtölin og samvinnuna. Gerum þetta áfram saman fyrir

Hveragerði – okkar Hveragerði.

Sandra Sigurðardóttir
Oddviti Okkar Hveragerðis og forseti bæjarstjórnar

Nýjar fréttir