Áralöng hefð hefur verið fyrir því í Sveitarfélaginu Ölfusi að haldnir séu opnir íbúafundir fyrir sveitarstjórnarkosningar þar sem fulltrúar framboða mæta saman, kynna stefnur framboðanna og svara spurningum íbúa. Slíkir fundir hafa í gegnum tíðina verið vel sóttir og verið mikilvægur þáttur í lýðræðislegu samtali í sveitarfélaginu. Fundirnir hafa verið tveir, annar í Þorlákshöfn og hinn í dreifbýli Ölfuss.
Nú eru aðeins tvö framboð í sveitarfélaginu, S-listi Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi og D-listi Sjálfstæðisflokks. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir fulltrúa S-lista síðustu vikur um að halda slíka fundi liggur nú fyrir að D-listi hefur hafnað þátttöku. Þetta kemur verulega á óvart og veldur raunar vonbrigðum.
Í tilkynningu D-lista kemur fram að ákvörðunin byggi á þeirri trú að í litlu samfélagi eigi ekki að „etja frambjóðendum saman“ og að slíkir fundir hafi ekki skilað þeirri málefnalegu umræðu sem fulltrúar listans telji mikilvæga. Þeir segjast kjósa frekar persónuleg samskipti við íbúa.
Það er réttur hvers framboðs að haga kosningabaráttu með eigin hætti en samt sem áður vakna upp við þessa ákvörðun spurningar. Opið og gagnsætt samtal hefur ítrekað verið nefnt sem leiðarstef hjá Sjálfstæðisflokknum. Er það í samræmi við þann anda að hafna þátttöku í sameiginlegum íbúafundum þar sem allir kjósendur hafa jafnan aðgang að upplýsingum á hlutlausum vettvangi? Eru óþægilegar spurningar á opnum fundum hluti af virku lýðræði eða eitthvað sem ber að forðast?
Að okkar mati eru opnir framboðsfundir ekki vettvangur fyrir átök heldur fyrir lýðræðislega umræðu. Þar fá íbúar tækifæri til að spyrja, bera saman sjónarmið og taka upplýsta ákvörðun. Slíkir fundir koma ekki í stað annarra samskipta, heldur bæta við þau og eru alþekktir sem hluti af aðdraganda kosninga víða um land. Það er ekki hægt að bera það saman að oddvitar mæti í viðtöl í fjölmiðlum og fund sem þennan. Fund þar sem fleiri frambjóðendur koma fram og íbúum gefst kostur á að fá skýr svör frá báðum framboðum.
Við á S-lista munum áfram leggja áherslu á opið samtal, þátttöku íbúa og gagnsæi. Við erum búin að skipuleggja opna íbúafundi þar sem fjórir efstu fulltrúar listans munu kynna sig og sín stefnumál. Fundirnir verða haldnir í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss mánudaginn 11. maí nk. og á Efstalandi í dreifbýli Ölfuss þriðjudaginn 12. maí. Báðir fundir hefjast kl. 20 og er fulltrúum D-lista velkomið að taka þátt í þeim.
Það er okkar trú að lýðræðið standi sterkast þegar framboð þora að mæta íbúum á opnum vettvangi. Á endanum eru það kjósendur sem dæma og vonum við að þeirra trú sé hin sama og okkar.
F.h. Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi
Gunnsteinn Ómarsson, 1. sæti
Berglind Friðriksdóttir, 2. sæti
Pálmi Ásbergsson, 3. sæti
Bryndís Sigurðardóttir, 4. sæti


