Þegar ég lít um öxl og skoða hvernig okkur hafi gengið að koma í framkvæmd því sem áformað var innansveitar í aðdraganda síðustu sveitarstjórnakosninga er ég harla ánægður.
Mikið hefur verið unnið í fasteignum bæði í eðlilegu viðhaldi og eins ýmiskonar breytingar gerðar á húsnæði svo það þjóni betur sínu hlutverki. Einnig er í farvegi uppbygging íbúðasvæðis við Þingborg , myndarleg stækkun á Flóaskóla, nýtt skipulag að klárast fyrir athafnasvæðið í Heiðargerði og áform um að koma loksins upp áhaldahúsi fyrir sveitarfélagið. Unnið er að endurskoðun aðalskipulags og margt tekið til skoðunar í þeirri vinnu.
Ný atvinnustefna hefur orðið til í samstarfi við önnur sveitarfélög. Úrgangsmálin hafa verið færð til réttlátari og betri vegar í takt við kröfur og þarfir notanda. Varðandi samgöngumál þá hefur verið þrýst mjög á Vegagerðina um umbætur en árangur hefur því miður látið á sér standa sem er ekki gott þar sem um mikið öryggismál er að ræða. Skólastarf gengur vel og hefur verið leitast við að styðja við það eftir bestu getu hvað húsnæði og tækjakost varðar en alltaf má betur gera í því.
Stutt hefur verið við heilsueflingu og íþróttastarf enda ekki stætt á öðru þegar horft er til framúrskarandi árangurs unga fólksins okkar í Skólahreysti og hinum ýmsu íþróttagreinum sem þau eru að stunda. Viðleitni til að styðja við þetta flotta starf eru breytingar sem ráðist var í í Þingborg þó það blasi við að þar er ekki um endanlega lausn að ræða heldur tímabundna lausn þar til færi gefst að byggja varanlega yfir íþróttastarfið hús við hæfi.
Mikið hefur gerst í starfi eldri íbúa á svæðinu og hittist talsverður hópur orðið reglulega og nýtur samveru með ýmiskonar ívafi sem er gott að sjá. Vonandi kemur að því að stofnað verði félag eldri borgara í Flóahreppi sem fer þá í að skipuleggja starfsemina út frá sínum sjónarhóli en hlutverk sveitarfélagsins verður þá að styðja við starfið frekar en að leiða það.
Mannauður okkar er mikill í öllum stofnunum og starfsmannavelta lítil þó hún sé alltaf einhver en það kemur maður í manns stað. Nefndarfólk hefur líka skilað góðu verki á kjörtímabilinu.
Góður andi hefur verið við sveitarstjórnarborðið þó stundum hafi verið skiptar skoðanir en við upphaf máls sem kemur til afgreiðslu er ekki alltaf augljóst hvenig fara skuli með það en þá hefur hópurinn átt gott með að ræða málin þar sem ég held að allir hafi fengið að segja sitt en opið og gott samtal er besta leiðin til farsællar niðurstöðu mála. Markmið okkar allra eru þau sömu að sýna ábyrgð, sinna lögboðnum skyldum okkar og þjónusta íbúa sem best.
Í upphafi kjörtímabils þekktist sveitarstjórnarfólkið ekki mikið en þessi tími saman leiddi til þess að fulltrúar í minnihluta völdu þá leið að ganga til liðs við okkur í Framfaralistanum og fagna ég því mjög að þeim hafi ekki liðið verr en svo við borðið með okkur. Allur hópurinn stendur því nú ásamt hóp af góðu fólki að framboði Framfaralistans til sveitarstjórnar í vor.
Megin markmiðið okkar eftir kosningar er að klára þau verk sem komin eru í farveg, halda áfram því góða starfi sem hefur verið en á sama tíma að velta við steinum og leitast við að gera enn betur svo Flóahreppur verði áfram sá góði búsetukostur sem hann er og allir fái notið sín sem best.
Framtíðin er í Flóahreppi
Ónefnd eru mörg málefni og verkefni innan sveitar sem og þau fjölmörgu samstarfsverkefni sem sveitarfélagið er aðili að en vonandi gefst færi á að setja meira á blað síðar varðandi þau.
Með kærri kveðju,
Árni Eiríksson oddviti sveitarstjórnar Flóahrepps
Skipar 1. sæti á lista Framfaralistans í Flóahreppi



