Íslandsmótinu í spyrnugreinum, á malbiki, lauk um helgina, með þriðju kvartmílukeppni sumarsins og stórgóðum árangri sunnlenskra keppenda. Haukur Baldvinsson á Toyota Supra; Ingimar Baldvinsson á Chevrolet Camaro; Arnkell Ragnar Ragnarsson á Plymouth Barracuda og Natthaphong Khamphan urðu allir íslandsmeistarar í sínum keppnisflokkum. Aðrir sunnlenskir keppendur sem gerðu það gott um helgina voru Gunnlaugur Emilsson og Sarawut Khamphan sem urðu í 3. sæti í sínum flokkum í kvartmílukeppni helgarinnar. Natthaphong og Sarawut eru bræður frá Hellu, Gunnlaugur er Flúðabúi og Arnkell ásamt bræðrunum Ingimari og Hauki eru Selfyssingar. Á myndinni eru frá vinstri Natthaphong, Arnkell, Haukur og Ingimar við kappakstursbíla sína.

