Pálsson fasteignasala eflir þjónustu sína á Suðurlandi þar sem Andrea Ósk Harradóttir, löggiltur fasteignasali hjá fyrirtækinu, mun sinna viðskiptavinum á Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn og nágrenni. Áhersla verður lögð á að veita íbúum svæðisins persónulega þjónustu við kaup og sölu fasteigna og vandaða kynningu eigna.
Andrea hefur mikinn áhuga á markaðssetningu og þeim tækifærum sem samfélagsmiðlar bjóða upp á í fasteignasölu. Hún hefur lagt sérstaka áherslu á gerð skemmtilegra og skapandi fasteignamyndbanda sem kynna eignir á ferskan og persónulegan hátt. Myndbönd hennar hafa vakið athygli og einstök myndbönd náð frá 10.000 upp í 80.000 áhorfum.
Með aukinni þjónustu á svæðinu vill Pálsson fasteignasala auðvelda Sunnlendingum að nálgast faglega ráðgjöf og öfluga markaðssetningu við sölu fasteigna. Andrea verður tengiliður viðskiptavina á svæðinu og fylgir þeim eftir í gegnum söluferlið, frá fyrstu ráðgjöf til loka viðskipta.

