Hjálmar Vilhelm mun æfa kringlukast undir stjórn Vésteins næsta árið í það minnsta. Hjálmar Vilhelm hefur undanfarin ár lagt stund á tugþraut með góðum árangri og hafa kastgreinar verið í algjörum sérflokki hjá honum í þrautinni. Er hann því að færa sig yfir í kringlukast og er þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að æfa undir stjórn Vésteins.
Þeir Ingvi Karl Jónsson og Rúnar Hjálmarsson munu mynda teymi með Vésteini og stýra æfingum hér heima á Selfossi á gólfinu, Vésteinn verður með í fjarfundarbúnaði og svo mun Hjálmar fara út til æfinga hjá Vésteini í fríum og svo er stefnan sett á að Hjálmar verði mikið úti hjá Vésteini næsta sumar.

