Þegar líður að seinni hluta septembermánaðar kemst hreyfing á öflugar nefndir, stjórnir og námskeiðshaldara sem hefja undirbúning að öflugu vetrarstafi FebSel. Það er stór hópur öflugara einstaklinga sem kemur að vetrarstarfinu ár hvert og verður þeim seint full þökkuð sú vinna.
Kynningarfundur vetrastarfsins verður fimmtudaginn 17. september og hefst hann á léttum kaffiveitingum kl. 14.45 í boði stjórnarinnar. Þegar allir hafa notið veitinganna hefjast kynningar á starfi vetrarins eins og það liggur fyrir. Og af mörgu er að taka að venju.
Myndlist, leiklist, sönglist, tálga, spila, lesa öndvegisbókmenntir, bæði nýjar og fornar. Karlarnir á Efri Hæðinni í Grænumörkinni
Leikhúsferðir, gönguferðir, bæði lengri og skemmri. Hreyfifimi af öllum gerðum og styrkleikum og jóga til slökunar. Boccia, snóker, píla og margt annað! Sumarferðir og útilegan Einu Sinn á Ágústkveldi sem slegið hefur í gegn!
Þátttaka í starfi félagsins er gefandi, hitta fólk, rabba saman yfir kaffibolla og njóta.
Skráningarlistar munu liggja frammi í Grænumörkinni eða tilkynnt um annað skráningarform.
Kaffisopinn er í boði fyrir alla kl. 10.00 alla morgna á virkum dögum. Hægt er að panta mat í hádeginu á heimasíðu Árborgar.
Öflug OPIN HÚS verða á fimmtudögum og munum við þar vera með fræðandi fyrirlestra, skemmtileg innslög, söng og alls kyns uppákomur. Kynningarfundur viðburðarstjórnar er fimmtudaginn 26. september. Þar verður farið í gegnum dagskrá á Opnum Húsum fram eftir vetri. Kvenfélagið mun sjá um veitingarnar í vetur eins og þær gerðu sl. vetur og slógu þær í gegn.
Árshátið verður 12. nóvember í Hótel Selfoss og þar verður að venju öflug og skemmtileg dagskrá. Aðventuhátið verður 3. desember með hátíðlegum söng og nærveru og ljúfum veitingum.
Við vekjum athygli á því að þetta öfluga starf sem við erum með í félagsmiðstöð okkar í Grænumörkinni og víðar er fyrir alla eldri borgara í Árborg. Alltaf eru að koma nýjir félagar og er nauðsynlegt að taka vel á móti þeim og láta þeim líða vel í félaginu okkar. Bjóða þa´velkomna og bjóða þeim sæti.
Skrifstofa félagsins er opin á fimmtudögum frá 13.00 – 14.30 og er á efri hæðinni í Grænumörk. Heimasíðan er febsel.is og þar eru margþættar upplýsingar og einnig er hægt að skrá sig í félagið þar. Einnig er fésbókarsíðan: Félag eldri borgara á Selfossi uppfull af upplýsingum.
Það er öflugt starf framundan og allir velkomnir. Ef einhver hefur áhuga á að brydda upp á nýjum námskeiðum eða með hugmyndir af einhverju skemmtilegu þá endilega hafa samband við stjórnina. Við skoðum allar tillögur með jákvæðni og hlýjum hug.
Við hvetjum alla Eldri Borgara að skrá sig í Félag Eldri Borgara á Selfossi í gegnum netfangið febsel@febsel.is eða í gegnum heimasíðu febsel.is eða koma við á skrifstofu félagsins á opnunartíma.
Takið þátt í öflugu starfi eldri borgara á Selfossi og njótið ykkar í öflugum félagsskap!
Magnús J. Magnússon, formaður Félags eldri borgara á Selfossi

