15 C
Selfoss

Þæfing, sköpun og sumarsólstöður í Listasafni Árnesinga

Vinsælast

Laugardaginn 20. júní stendur Listasafn Árnesinga fyrir skapandi þæfinga-listasmiðju þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast votþæfingu og skapa eigin myndverk úr ull. Smiðjan fer fram frá kl. 13–15 og er ætluð öllum 11 ára og eldri.

Þæfing á ull er skemmtileg aðferð sem umbreytir lausum trefjum í þétt og endingargott efni. Í smiðjunni verður lögð áhersla á votþæfingu, þar sem ull er unnin með volgu vatni og sápu til að mynda mjúkar og litríkar myndir. Þátttakendur fá tækifæri til að „mála“ með ullartrefjum og kanna möguleika þessa handverks í listrænu samhengi.

Innblástur verður meðal annars sóttur til sumarsólstaða og birtunnar sem einkennir íslenskt sumar. Þannig geta þátttakendur skapað sín eigin ullarmálverk sem endurspegla litbrigði, ljós og stemningu árstímans.

Leiðbeinendur smiðjunnar eru listamennirnir Agata Mickiewicz og Styrmir Örn Guðmundsson, sem bæði hafa mikla reynslu af listsköpun og skapandi fræðslu. Þau eiga jafnframt verk á yfirstandandi sýningu Listasafns Árnesinga sem ber heitið Reiturinn á milli, og munu leiða þátttakendur í gegnum ferlið og kynna fjölbreyttar leiðir til að vinna með ull sem listrænan efnivið.

Listasafn Árnesinga er opið alla daga vikunnar í sumar frá kl. 12–17. Gestir geta notið notalegs kaffihúss, sest út á sólríkum dögum og skoðað safnbúðina sem býður upp á fjölbreytt úrval gjafavara. Allskonar föndur er í krakkakrók og auðvitað ratleikur fyrir forvitna gesti og margt fleira.

Hægt er að fylgjast með viðburðum og listasmiðjum á Facebook- eða heimasíðu safnsins.

Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram á allar smiðjur þar sem pláss er takmarkað. Nánari upplýsingar og skráning fara fram í gegnum netfangið fraedsla@listasafnarnesinga.is.

Nýjar fréttir