Sunnudaginn 7. júní 2026, var haldin árleg osta- og brauðtertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis í miðbæ Selfoss. Keppnin hófst fyrir 12 árum síðan sem Ostakökukeppni Kaffi Krús, en fyrir þrem árum kom Konungskaffi með okkur í þennan skemmtilega viðburð og þá bættist við Brauðtertukeppni.
Það stefndi allt í metfjölda þátttakenda sem varð svo ekki vegna forfalla. Aldrei hafa fleiri karlmenn tekið þátt í keppninni.
Mina Stojanov vann besta ostakakan árið 2026 með köku sinni Baklava ostakaka. Umsögn dómnefndar var “frumleg, falleg, bragðgóð og skemmtilega öðruvísi. En uppskriftin á rætur að rekja til Tyrklands“

Hilmar Harðarson, matreiðslumeistari vann besta brauðterta ársins 2026 með Karrý Lime- rækjutertu. Umsögn dómnefndar “Einstaklega fallega skreytt með matjurtum úr garði Hilmars. Hlutfall á milli brauðs og rækjusalat frábært. Klassísk brauðterta þar sem ferskleiki naut sín.

Verðlaunin fyrir fallegstu köku ársins 2026 hlaut svo Evgeniya Vaganova fyrir ostakökuna Allsber. Ostakakan var skreytt með ferskum berjum og var einstaklega falleg.

Formaður dómnefndar var Guðrún Hafsteinsdóttir en hún er auðvitað vön Kjöríssmakkari og með henni í dómnefnd sátu Anna Margrét Magnúsdóttir sem unnið hefur Ostakökukeppnina þrisvar sinnum, Daníel Ólafsson, Haukur Már Hauksson, Ida Sofia Grundberg, Valdimar Bragason og Þórhildur Guðbjörg Hjaltadóttir.

Vinningshafar fengu glæsileg verðlaunin frá Hótel Geysir, Hótel Kríu í Vík og Hótel Örk og fallegar ostakörfur frá MS.
Einnig fengu allir keppendur gjafabréf frá Kaffi krús og Konungskaffi að verðmæti 20.000kr.
Skipuleggjendur þakka öllum þátttakendum, styrktaraðilum og dómnefnd kærlega fyrir að gera þennan dag einstaklega skemmtilegan.
— Kaffi Krús og Konungskaffi

