17.3 C
Selfoss

Njálufélagið efnir til Njálureiðar

Vinsælast

Njálufélagið efnir til Njálureiðar laugardaginn 22. ágúst nk.

Ferðin hefst í Fljótshlíðarrétt, mæting kl. 11–13 þann dag. Riðið verður um Landeyjar í Káragerði þar sem Kári Sölmundarson slökkti í fötum sínum eftir að hafa sloppið úr brennunni á Bergþórshvoli. Kári herti dignað sverðið svo í blóði Sigfússona og annarra brennumanna.

Hermann Árnason verður leiðangursstjóri en sagnamennirnir Lárus Bragason og Friðbjörn Garðarsson segja frá atburðum.

Íslensk kjötsúpa mun malla í pottum Bergþóru húsfreyju í umsjón þeirra Ástu í Seli og Diddu í Hólmi. Bjór frá Agli Skallagrímssyni verður kneyfaður.

Hinn rangæski gítar- og söngsnillingur Hlynur Snær mun þenja strengina og reyna sönghæfni reiðmanna og annarra gesta. Það verður gleði og söngur og sögur í reiðhöllinni í Káragerði þetta kvöld. Þar ræður ríkjum Benjamín Sandur Ingólfsson hestamaðurinn snjalli. Allir eru velkomnir í reið eða sönginn.

Reiðskykkja Njálufélagsins er skilyrði fyrir þátttöku í reiðinni.

Allar frekari upplýsingar er að finna á njalufelagid.is þar er hægt að ganga í Njálufélagið og gerast heiðursáskrifandi að Njálu Jóns Böðvarssonar, jólabókinni í ár með myndum Þórhildar Jónsdóttur frá Lambey í Fljótshlíð.

Guðni Ágústsson
Formaður Njálufélagsins

Nýjar fréttir