Flúðir um Versló var haldið síðustu helgi í ellefta skipti með fjölbreyttri dagskrá alla helgina. Fjöldinn allur af fólki um land allt lagði leið sína á Flúðir og dvaldi á tjaldsvæðinu enda blíðskaparveður alla helgina.
Bessi Theodórsson, forsvarsmaður hátíðarinnar, segir hátíðina hafa heppnast einstaklega vel í ár en alls voru taldir um 10 þúsund manns sem kíktu við á Flúðum yfir helgina.
„Flúðir um Versló í ár fór fram úr öllum vonum. Fólk alls staðar að kom staðráðið í því að finna rólegheit og skemmta sér. Veðrið setti punktinn algjörlega yfir i-ið,“ segir Bessi í samtali við Dagskrána.


Nóg var um að vera og má meðal annars nefna fjölskylduskemmtun, traktoratorfæru, furðubátakeppni og brennu- og brekkusöng. Stuðlabandið mætti ásamt Siggu Beinteins og skemmti gestum á balli í félagsheimilinu á laugardagskvöldið. Lokahnykkur hátíðarinnar var svo brekkusöngurinn sem var stýrt af trúbadornum Hlyni Snæ. Sömuleiðis var ball eftir brekkusöng á sunnudeginum þar sem Bandamenn trylltu lýðinn.
SEG
Meðfylgjandi myndir fyrir neðan eru frá furðubátakeppninni í ár. Ljósmyndir: Drónatökur.is/Arnór Snær.



