Eldur kviknaði í sumarbústað í Veiðilundi við Þingvallavatn sl. laugardagskvöld. Þegar slökkvilið bar að var húsið alelda og varð það gjöreyðilagt í brunanum. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu á Selfossi og Laugarvatni var kallað á vettvang en neyðarlínunni barst tilkynning um eldinn kl. 21:20.
Allir sem voru í húsinu komust út og enginn er slasaður.
Búið var að slökkva á eldinum kl. eitt en þá var húsið alelda. Það þurfti að flytja vatn í tankbílum til að slökkva eldinn. Áhersla var lögð á að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út í nærliggjandi gróður.
Orsök brunans er í höndum lögreglu.

