10.6 C
Selfoss

Mafalda og Tómas sigruðu 106 km hlaupið

Vinsælast

Hengill Ultra fór fram í fimmtánda sinn í Hveragerði sl. laugardag. Alls tóku um 1000 hlauparar frá 38 þjóðlöndum þátt til að spreyta sig á fimm vegalengdum um eitt fjölbreyttasta og fallegasta utanvegahlaupssvæði landsins. Hafa aldrei áður jafn margir erlendir hlauparar tekið þátt í hlaupinu.

Í kvennaflokki 106 km varð sigurvegari Mafalda Sigmarsson frá Portúgal, rásnúmer 119. Mafalda, sem hefur búið á Íslandi undanfarin sex ár, kom í mark á tímanum 18:59:13 eftir sterkt og yfirvegað hlaup. Tómas Aron Viggósson sigraði 106 km í karlafokki á tímanum 14:34:14, eftir afar krefjandi aðstæður á brautinni.

Í 53 km hlaupinu sigraði Grétar Guðmundsson í karlaflokki, en í kvennaflokki bar Dalrós Inga Ingadóttir sigur úr býtum á tímanum 5:51:00. Í 26 km hlaupinu var það Egill Gunnarsson úr Fjallahlaupaþjálfun sem kom fyrstur karla í mark á glæsilegum tíma, 1:47:24. Í kvennaflokki sigraði Hildur Aðalsteinsdóttir úr Haukum á tímanum 1:59:56 og var þar með fyrsta konan í mark í þeirri vegalengd.

Sjá úslit:
HENGILL ULTRA TRAIL 2026

Hlaupið gekk vel þrátt fyrir mikla bleytu á brautinni eftir úrkomu síðustu daga. Veðrinu fór batnandi þegar leið á daginn og mikill fjöldi gesta lagði leið sína til Hveragerðis til að fylgjast með keppninni og taka á móti hlaupurum í mark.

Meðfylgjandi ljósmyndir tóku Magnús Stefán Sigurðsson, Mummi Lú og Einar Bárðarson.

Nýjar fréttir