Kvikmyndahátíð barnanna er ný stuttmyndahátíð fyrir börn í Bíóhúsinu Selfossi. Viðburðurinn er hluti af menningarmánuði Árborgar og er einnig styrktur af SASS og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Það er frítt inn á meðan húsrúm leyfir en dagskrá og upplýsingar um myndirnar má finna á www.kidsforfilms.com
10 börn úr Sveitarfélaginu Árborg hafa valið 24 stuttmyndir frá 17 löndum og var markmið hátíðarinnar að bjóða uppá fjölbreyttar stuttmyndir úr ólíkum menningarheimum. Börnin hönnuðu merki fyrir hátíðina, verðlaun og bjuggu þau sjálf til í Fablab Selfoss. Verðlaunaflokkarnir eru fjórir en barna undirbúningsnefndin velur bestu myndina, besta handritið og besta boðskapinn. Áhorfendaverðlaunin eru svo veitt þeirri mynd sem fær flest atkvæði áhorfenda, en gestir hátíðarinnar geta kosið með QR kóða á meðan á hátíðinni stendur. Viðburðurinn er vonandi kominn til að vera og vonum við að hátíðin verði hvetjandi fyrir ungt fólk að kynna sér alþjóðlega kvikmyndagerð frekar og ekki síðst að prófa sig sjálft áfram í stuttmyndagerð.
Hátíðin byrjar kl.11:00 á laugardaginn á myndum sem hæfa leikskólaaldri og uppúr. Það má alltaf fara útúr salnum á milli mynda og koma inn á milli mynda svo lengi sem það eru sætispláss.




