7.3 C
Selfoss

Risarækjupasta með chili

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Einar Ísak Friðbertsson.

Takk fyrir áskorunina, Jón Karl! Mig langar að deila með ykkur uppskrift að rétti sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég verð þó að viðurkenna að ég er ekki beint sá flinkasti í eldhúsinu en maður er alltaf að reyna að bæta sig. Þessi réttur er hins vegar einfaldur í matreiðslu og virkilega bragðgóður. Hér kemur uppskriftin. Ég vona að ykkur líki rétturinn jafn vel og mér!

Risarækjupasta með chili, basil og sólþurrkuðum tómötum

Innihald

400 g tagliatelle-pasta
500 g rækjur, afhýddar
4-6 hvítlauksgeirar í sósuna, smátt saxaðir
Nokkrir hvítlauksgeirar til viðbótar fyrir rækjurnar
½ krukka sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
Ferskt chili eftir smekk
500 ml rjómi
1 lítið knippi fersk basilíka
½ sveppakraftsteningur
Smjör til steikingar
Repjuolía eða smjör til að steikja rækjurnar
Salt og pipar
Parmesanostur eftir smekk

Aðferð

Saxið hvítlaukinn og sólþurrkuðu tómatana. Bræðið smjör á pönnu og steikið hvítlaukinn og tómatana við meðalhita. Bætið chili út á pönnuna eftir smekk. Hellið rjómanum út í, bætið basilíkunni og hálfum sveppakraftsteningi saman við og látið sósuna malla þar til hún þykknar. Ekki þarf að nota sósujafnara. Smakkið til með salti og pipar.

Steikið rækjurnar á annarri pönnu við háan hita ásamt söxuðum hvítlauk, salti og pipar. Notið repjuolíu ef þið viljið fá meiri steikingarbrún á rækjurnar eða smjör fyrir mildara bragð. Bætið rækjunum út í sósuna.

Sjóðið tagliatelle samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Hellið vatninu af og blandið pastanu saman við sósuna og rækjurnar. Berið fram með rifnum parmesanosti.

Verði ykkur að góðu! Uppskriftin dugar fyrir um fjóra.


Að lokum skora ég á Tryggva Sigurberg Traustason. Ég veit að hann á eftir að koma með einhvern gómsætan rétt, enda er hann frábær í eldamennsku!

Nýjar fréttir