-1.7 C
Selfoss

Handleiðsla – þarf að bíða þar til álagið verður of mikið?

Vinsælast

Hvenær gafst þér síðast tækifæri til að staldra við og ígrunda starf þitt? Ekki til að fara yfir verkefnalistann eða skipuleggja næsta vinnudag, heldur til að skoða hvernig þér líður í starfi, hvað gengur vel og hvað mætti fara betur?

Flest viljum við standa okkur vel í vinnunni. Við leggjum metnað í starfið og viljum finna að framlag okkar skipti máli. En daglegt annríki, ábyrgð og síbreytilegar kröfur geta geta orðið að álagi sem hefur áhrif á líðan og starfsánægju.

Þegar álagið eykst

Streita er áberandi meðal þeirra sem starfa við að hjálpa, kenna, leiðbeina og annast aðra. Það er ákveðin þversögn fólgin í því að eiginleikarnir sem gera fólk hæft til slíkra starfa geta jafnframt gert það viðkvæmara fyrir streitu. Samviskusemi, ábyrgðarkennd og rík samkennd eru verðmætir eiginleikar en geta orðið íþyngjandi þegar kröfurnar verða meiri en svigrúmið til að mæta þeim.

Streita í starfi verður þó sjaldnast skýrð með einum þætti. Hún getur orðið til í samspili verkefna, ábyrgðar, samskipta, starfsaðstæðna og þeirra væntinga sem við gerum til okkar sjálfra og annarra. Stjórnendur standa einnig frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Þeir þurfa að samræma ólíkar þarfir, taka ákvarðanir og styðja starfsfólk, oft við aðstæður sem þeir hafa ekki fulla stjórn á.

Hvað getur handleiðsla gert?

Fagleg handleiðsla er skipulagður vettvangur fyrir ígrundun og sjálfskoðun. Hún gefur rými til að auka innsæi og rýna í fagmennskuna. Hún er tækifæri til að efla skilning á eigin viðbrögðum í aðstæðum og samskiptum og finna uppbyggilegar leiðir til að takast á við aðstæður.

Fyrir starfsfólk getur handleiðsla aukið faglegt öryggi, bætt samskipti, skýrt mörk og styrkt hæfni til að takast á við álag. Fyrir stjórnendur getur hún skapað mikilvægt svigrúm til að ígrunda ákvarðanir, leiðtogahlutverkið og vinnustaðamenningu. Handleiðsla fyrir teymi og hópa getur stuðlað að betra samstarfi og meiri skilningi manna í milli.

Staldraðu við

Evrópudagur handleiðslu er 21. nóvember ár hvert. Dagurinn gefur tilefni til að velta fyrir sér hvernig við hlúum að eigin fagmennsku og vellíðan í vinnu. Þótt fagleg sýn sé sterk er gott að fá ný sjónarhorn. Handleiðsla veitir einmitt slíkt tækifæri. Spurningin er því ekki endilega hvort þú þurfir á handleiðslu að halda, heldur hvað þú gætir fengið út úr henni.

Þórunn Jóna Hauksdóttir
faglegur handleiðari
thorunnjona.is

Nýjar fréttir