Á ársfundi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 28. maí sl. afhenti Sigurbjörg Hermundsdóttir f.h.
Lionsklúbburinn Embla á Selfossi, færði bráðamóttöku og bráðalyflækningadeild HSU gjafabréf að upphæð rúmlega 1 milljón króna fyrir blöðruskanna, sem Kolbrún Gunnarsdóttir deildarstjóri veitti móttöku, þakkaði fyrir og fór nokkrum orðum um tilgang tækisins og starf bráðamóttökunnar og bráðalyflækninga HSU.

Með þessum atburði enduðum við félagar í l.kl. Emblu sérlega skemmtilegt og gefandi starfsár þar sem 6 öflugar konur gengu í klúbbinn okkar og hlökkum við til að starfa með þeim á komandi árum. Það má taka fram að allt sem við öflum rennur til góðra mála í heimabyggð.
F.h. L.kl. Emblu, Guðmunda Auðunsdóttir

