10.7 C
Selfoss

Sumarsalat með grilluðu folaldafile og grilluðu brauði

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Olga Valsdóttir.

Ég þakka Gísla fyrir áskorunina og deili með ykkur ljúffengri sumarlegri uppskrift.

Sumarsalat með grilluðu piparkryddlegnu folaldafile og grilluðu brauði

Léttur réttur sem hægt er að elda fyrirfram og er hentugur í partý eða sem forréttur, en að sjálfsögðu er líka hægt að bera fram sem aðalrétt. Gott að bera fram með góðu brauði hvort sem það er heimabakað eða keypt

Innihald

1 pakki piparmarínerað folaldafile (eða önnur steik) Gott er að taka kjötið úr ísskápnum klukkutíma áður en á að grilla það.

Grillað grænmeti: Hægt að nota hvaða grænmeti sem hugurinn girnist en t.d.

  • 1 búnt grænn aspas (skera í helminga), eða kúrbít
  • 1 rauð paprika (skera í ca 1 cm þykkar ræmur)
  • 1 búnn vorlaukur Hreinsa eða 1 rauðlaukur

Marínering fyrir grænmeti:

  • 1 maukað hvítlauksrif
  • 3 msk fersk steinselja eða þurrkuð krydd
  • 1 msk ferskt tímían
  • 1 dl ólífuolía 1 tsk salt og ¼ tsk pipar

Salatið

  • Salatblanda að eigin vali
  • 1 bakki sherrýtómatar

Salatdressing:

  • 4 msk ólífuolía, 4 msk balsamic, 4 msk vatn, 1 msk hunang, 1 maukað hvítlaukslauf og 1 tsk rifið ferskt engifer, salt og pipar. 50 g bláber.

Skerið grænmetið í frekar stóra og langa bita, setjið allt fyrir kryddleginn í skál og blandið vel saman, bætið grænmetinu út í og látið standa í ca. hálftíma.

Gerið salatið klárt á fallegum disk.

Grillið kjötið í ca 3–4 mínútur á hvorri hlið (eftir þykkt og smekk). Látið kjötið standa í 10 mín eftir grillun og skerið svo í þunnar sneiðar.

Setjið grænmetið í grillbakka eða grænmetiskörfu og grillið í 4–6 mínútur. Setjið grænmetið aftur í olíuskálina og bætið smá olíu og salti út í og veltið því vel saman.

Dreifið grillaða grænmetinu yfir salatið (þegar grænmetið er orðið nokkurn veginn svalt).

Leggið þar næst steikina yfir og dreifið í lokin dressingunni yfir.

Gott er að bera fram með brauði, hér er uppskrift að grilluðu brauði.

Grillað pizzabrauð

  • 1 kúla af pizzadeigi (keypt eða heimatilbúin)
  • 2 msk ólífuolía

Olíublanda til að pensla með (líka hægt að nota einhverja tilbúna kryddjurt/hvítlauksolíu).

  • 1/2 dl ólífuolía, 2 hvítlauksrif, 1 stilkur ferskt tímían, 1/2 tsk salt. Saxa hvítlauk og tímían og blanda í olíu.

Setja ca. 2 msk ólífuolíu á ofnplötuna.

Fletjið deigið út þannig að það passi á ofnplötuna og leggið deigið í olíuna, penslið með ólífuolíu. Látið deigið hefa í 15–20 mínútur.

Skera deigið í bita með pizzahjóli eða hníf (ca 4 x 10 cm eða eftir smekk)

Grilla brauðið við ca. 300 °C og standa yfir því því það bakast mjög fljótt, ca. 2 mínútur á hvora hlið eða þangað til brauðið er orðið gullinbrúnt og bakað í gegn.

Setjið brauðið aftur á ofnplötuna og penslið með kryddjurtaolíu um leið og brauðið kemur af grillinu og stráið aðeins af grófu salti yfir.


Ég skora á Bjarka Frey Sigurjónsson kjötiðnaðarmeistara að koma með eitthvað frumlegt á grillið í næstu viku.

Nýjar fréttir