Undanfarnar vikur hafa nemendur í gönguáföngum FSU fengið einfalt verkefni – að hafa augun opin fyrir hjörtum í umhverfinu í tímum. Hjartalaga laufblað, steinn, pollur eða eitthvað sem mörg myndu ganga fram hjá án þess að veita því athygli.
Afraksturinn hefur ekki látið á sér standa. Vökulum augum fjölgar, samtöl kvikna og forvitnin fær að njóta sín – en hvenær hættum við eiginlega að taka eftir?
Við erum sífellt á leiðinni eitthvert, með augun á skjánum, AirPods í eyrunum og hugann við næsta verkefni. Förum sömu leiðina dag eftir dag á sjálfstýringu án þess að sjá fegurðina í litlu hlutunum eða gefa huganum hvíld frá sjálfsköpuðu áreiti.
Á sama tíma leitum við leiða til að bæta heilsuna, draga úr streitu og auka vellíðan. Kaupum námskeið, öpp, vítamín, auka duft í dollu og alls konar lausnir, stundum rándýrar skyndilausnir, þegar eitt einfaldasta bjargráðið er mögulega rétt fyrir utan útidyrnar okkar allra.
Rannsóknir benda til þess að útivera getur haft jákvæð áhrif á líkamlega, andlega og félagslega vellíðan. Japanir hafa meira að segja sérstakt hugtak yfir það að njóta náttúrunnar með skynfærunum, shinrin-yoku, eða skógarböð. Í skógarbaði snýst málið ekki um að ganga lengra eða hraðar, safna skrefum eða muna að setja Strava í gang, heldur að staldra við, horfa, hlusta, finna og njóta. Að vera!
Núvitund er ekkert nýtt af nálinni, þótt við séum farin að setja hana í fínar umbúðir. Að staldra við og njóta hefur alltaf verið til. Kannski erum við bara orðin svo upptekin af því að leita að nýjum lausnum að við gleymum þeim einföldustu – sérstaklega þeim sem kosta ekki krónu.
Hvað ef við gefum okkur 15 mínútur á dag í dagsbirtu, án skjás og heyrnartóla? Bara til að vera á staðnum, horfa í kringum okkur og leyfa skynfærunum að njóta. Vera í meðvitund!
Það er einmitt hugsunin á bak við litla verkefnið í gönguáföngunum. Ekki að finna sem flest hjörtu, heldur að æfa sig í að taka eftir og sjá fegurðina í því sem annars fer fram hjá okkur.
Kannski þurfum við ekki alltaf eitthvað nýtt til að líða betur, heldur einfaldlega að nýta betur það sem við höfum nú þegar.
Það kostar ekki krónu ♡
Sabína Steinunn Halldórsdóttir
M.ed.þrótta- og heilsufræðingur
FSU
Í nóvember leggjum við í FSu sérstaka áherslu á EKKO forvarnir undir yfirskriftinni Jákvæður nóvember. Markmiðið er að efla það sem við viljum sjá meira af í skólasamfélaginu: jákvæð samskipti, virðingu, ábyrgð, öryggi og vellíðan. Með fjölbreyttum verkefnum og virkri þátttöku nemenda og starfsfólks vinnum við saman að því að styrkja jákvæðan skólabrag.


