Nú þegar líður að lokum 2026 er ekki annað hægt en að horfa til baka á þetta frábæra frjálsíþróttaár sem er að baki hjá iðkendum félaga innan HSK. Aldrei hafa keppendur af okkar sambandssvæði verið kallaðir inn í jafn mörg landsliðsverkefni og náð jafn góðum árangri.
Flestir keppendur fóru á Norðurlandamót U20 eða fimm keppendur og kepptu þar í átta keppnisgreinum. Voru þetta Bryndís Embla Einarsdóttir Umf. Selfoss, Helga Fjóla Erlendsdóttir íþrf. Garpi, Hjálmar Vilhelm Rúnarsson Umf. Selfoss, Ívar Ylur Birkisson íþrf. Dímon og Kristján Kári Ólafsson Umf. Selfoss. Bryndís Embla náði þar bronsverðlaunum í spjótkasti og Ívar Ylur hafnaði í 4. sæti í 110m grindahlaupi. Helga Fjóla keppti einnig á Norðurlandamótinu í fjölþrautum og Hjálmar og Bryndís voru hluti af keppnisliði Íslands á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Bryndís náði þar öðru sæti í spjótkasti.
Að öllum öðrum ólöstuðum stóð árangur Bryndísar Emblu þó uppúr þar sem hún náði auk þess lágmörkum inn á tvö stórmót í sumar. Annars vegar Evrópumót U18 og Heimsmeistaramót U20 þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gömul. Á Evrópumótinu kastaði hún lengst allra í forkeppninni eða 55,96m með 500gr spjótinu. Í úrslitakeppninni kastaði hún svo 53,34m sem skilaði henni 4. sætinu. Algerlega frábær árangur. Á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Bandaríkjunum hafnaði hún í 16. sæti og var bara 45cm frá sæti í úrslitakeppninni. Það er ekki oft sem keppandi af okkar sambandssvæði nær keppnisrétti á HM og er þá sama til hvaða íþróttar við horfum. Eins og staðan er núna er hún í öðru sæti á evróuplista U18 og í þriðja sæti á heimslista U18. Það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með henni sumarið 2027.

Vert er einnig að geta þess að þjálfararnir Rúnar Hjálmarsson og Þuríður Ingvarsdóttir frá Umf. Selfoss hafa bæði fylgt landsliðinu sem þjálfarar á flest þessara móta og þá borið titilinn landsliðsþjálfarar.
Svona árangur gerist ekki í tómarúmi og margt jákvætt er í gangi á svæðinu. Aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta innanhúss hefur batnað á síðustu árum með tilkomu innanhúsaðstöðunnar í Selfosshöllinni en áfram þarf að standa vörð um utanhússaðstöðuna víða á svæðinu og gæta að viðhaldi mannvirkjanna. Frjálsar eru iðkaðar víða á sambandssvæðinu með metnaðarfullum þjálfurum og áhugasömum iðkendum bæta sig nánast í hvert sinn sem þeir stíga út á brautina. Að endingu verður svo að nefna að við eigum marga færa sjálfboðaliða í okkar röðum sem halda starfinu gangandi og gera okkur kleift að halda mót eins og best gerist hér á landi.
Félögin á sambandssvæði HSK senda sameiginlegt keppnislið á Íslandsmeistaramót og bikarkeppnir sem ber nafnið HSK/Selfoss. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og sigraði liðið t.d. heildarstigakeppni á fimm meistaramótum á árinu, í mismunandi aldursflokkum. Það er ótrúlega gaman að geta unnið saman og sent öflugra lið til leiks.
Eftirfarandi félög á sambandssvæði HSK bjóða upp á æfingar í frjálsum íþróttum og áhugasamir eru hvattir til að setja sig í samband við félögin til að fá upplýsingar um æfingatíma eða finna upplýsingar á heimasíðum/ facebooksíðum þeirra. Hver veit nema næsti HM fari í frjálsum íþróttum búi á þínu heimili?
Íþrf. Dímon á Hvolsvelli
Íþrf. Garpur á Laugalandi
Umf. Biskupstungna í Reykholti
Umf. Hekla á Hellu
Umf. Hvöt á Borg
Umf. Laugdælir á Laugarvatni
Umf. Selfoss á Selfossi
Umf. Þór í Þorlákshöfn
Guðmunda Ólafsdóttir, formaður frjálsíþróttaráðs HSK

