3.1 C
Selfoss

Árlegu jólatónleikar kórs Menntaskólans að Laugarvatni

Vinsælast

Jólastemmningin var allsráðandi í Skálholtskirkju síðustu helgi þegar kór Menntaskólans að Laugarvatni hélt sína árlegu jólatónleika. Jólatónleikar kórs ML hafa verið fastur liður í lok nóvembermánaðar í þó nokkur ár og hefur aldrei mistekist að koma nemendum og gestum tónleikanna í jólaskap fyrir jólafrí.

Dagskrá kórsins var fjölbreytt og innihélt ýmis hátíðarlög sem flest okkar ættu að kannast við. Ýmsir krakkar innan kórsins tóku af skarið og sungu einsöng með prýði og skipaði hluti nemenda úr kórnum litla hljómsveit sem lék undir í nokkrum lögum.

Kórinn er undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Stefán hefur síðustu tvö ár náð að setja sinn svip á kórstarfið og hefur allur undirbúningur tónleikanna verið nýttur í haust á kóræfingum. Kórinn samanstendur af 78 efnilegum söngvurum. Margrét Elín Ólafsdóttir er verkefnastjóri kórsins og hefur stýrt bæði skipulagi og fjáröflun tónleikanna ásamt kórstjórn sem fimm nemendur kórsins sitja í.

Jólatónleikar helgarinnar sýndu glöggt að kórstarfið er í öruggum höndum og heldur áfram að blómstra. Það má með sanni segja að hátíðartónleikarnir hafi verið fallegur fyrirboði þess sem koma skal.

SEG

Nýjar fréttir