-1.7 C
Selfoss

Kiðjabergsvöllur bestur þriðja árið í röð

Vinsælast

Kiðjabergsvöllur hefur verið valinn besti golfvöllur Íslands árið 2026 (Iceland’s Best Golf Course) af World Golf Awards. Þetta er þriðja árið í röð sem völlurinn hlýtur þessa virtu alþjóðlegu viðurkenningu, en Kiðjabergsvöllur hlaut einnig verðlaunin árin 2024 og 2025.

World Golf Awards voru veitt í 13. sinn og eru hluti af World Travel Awards, sem hafa frá árinu 1993 veitt viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í ferða- og þjónustugreinum um allan heim.

Val á sigurvegurum byggir á alþjóðlegri atkvæðagreiðslu þar sem bæði fagfólk úr golf- og ferðaþjónustu og almenningur geta greitt atkvæði. Atkvæðagreiðsla ársins 2026 hófst í ársbyrjun og lauk í lok október.

Verðlaunaafhending World Golf Awards 2026 fór fram við hátíðlega athöfn á Madinaty Golf Club í Egyptalandi. Guðmundur Ásgeirsson, formaður Golfklúbbs Kiðjabergs, var viðstaddur hátíðina fyrir hönd félagsins og tók á móti verðlaununum.

Mikil viðurkenning fyrir metnaðarfullt starf

„Við erum ótrúlega þakklát fyrir þennan heiður. Að vera kjörinn besti golfvöllur Íslands árið 2026, og það þriðja árið í röð, er frábær viðurkenning fyrir allt það ómetanlega starf sem hefur verið unnið á Kiðjabergi í fjölda ára. Sjálfboðaliðar, starfsfólk og stuðningsfólk klúbbsins hafa öll lagt sitt af mörkum og án þeirra væri þetta ekki mögulegt. Þessi viðurkenning hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut og gera völlinn enn betri. Það var jafnframt mikil ánægja og heiður að taka á móti verðlaununum fyrir hönd klúbbsins við glæsilega verðlaunaafhendingu World Golf Awards á Madinaty Golf Club í Egyptalandi,“ segir Guðmundur Ásgeirsson, formaður Golfklúbbs Kiðjabergs.

Guðmundur Fannar Vigfússon, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs, tekur í sama streng og segir verðlaunin endurspegla það metnaðarfulla starf sem unnið hefur verið á Kiðjabergi undanfarin ár.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá Kiðjabergsvöll hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Golfklúbb Kiðjabergs og allt það góða starf sem unnið hefur verið við uppbyggingu og umhirðu vallarins í gegnum árin. Verðlaunin eru okkur jafnframt mikil hvatning til að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum á og gera enn betur. Vallarstarfsmenn GKB hafa unnið af miklum metnaði og ástríðu og þessi árangur er okkur öllum mikið ánægjuefni,“ segir Fannar.

Sameiginlegur árangur

Þetta er mikil viðurkenning fyrir Golfklúbb Kiðjabergs og endurspeglar þann metnað, fagmennsku og dugnað sem hefur einkennt þá uppbyggingu og umhirðu á Kiðjabergsvelli undanfarin ár.

Golfklúbbur Kiðjabergs færir starfsfólki, sjálfboðaliðum, félagsmönnum, samstarfsaðilum og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til uppbyggingar vallarins innilegar þakkir. Þessi árangur er sameiginlegur og mikil hvatning til að halda áfram að þróa og bæta Kiðjabergsvöll til framtíðar.

Nýjar fréttir