Sjö skáldkyrjur munu flytja ljóð sín í Konubókastofu 19. nóvember kl. 17–19.
„Það má segja að 19. nóvember sé dagur okkar skáldkyrja og munum við halda áfram að ljóðast saman árlega á þeim degi um ókomna framtíð.
Í ár bjóðum við gesti velkomna í Konubókarstofu og hlusta á ljóðalestur á birtum og óbirtum ljóðum úr fórum okkar, hver með sínum hætti. Verið hjartanlega velkomin í kaffi og hlýða á upplestur!“
Flytjendur eru þær Draumey Aradóttir, Gunnhildur Þórðardóttir, Helen Halldórsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Rut Ríkey Tryggvadóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir.
Allar hafa þær gefið út fjölda ljóðabóka, tekið þátt í mörgum upplestrum og fengið viðurkenningar og ljóðaverðlaun.
Konubókastofa er staðsett á neðri hæð bókasafnsins á Eyrarbakka, Túngötu 40.

