-1.7 C
Selfoss

Frábær árangur hjá Sunnlenskum Judokonum

Vinsælast

Um nýliðna helgi var Íslandsmeistaramót Judosambands Íslands haldið í íþróttahúsi Grindavíkur. Mótið tókst með ágætum og sendi Judofélag Suðurlands frambærilega sveit kvenna til þátttöku. Í þetta skiptið hallaði á þátttöku karla en var árangurinn ekki síðri fyrir vikið. Þátttakendur Judofélagsins voru Sara Nugig Ingólfsdóttir, Agla Ólafsdóttir, og Ella Rogge sem enduðu allar daginn á því að stíga ítrekað á verðlaunapall.

Í einstaklingskeppninni kepptu þær stöllur allar í -63kg. flokki og einokuðu verðlaunapallinn. Agla Ólafsdóttir varð Íslandsmeistari, Sara Nugig Ingólfsdóttir varð í öðru sæti og Ella Rogge í þriðja sæti. Glæsilegur árangur þar og má segja að verður vart betri.

Næst tók við opinn flokkur kvenna og enduðu Agla og Sara í þriðja sæti á eftir góðum judokonum úr Reykjavík. Keppni í opnum flokki háttar þannig til að ekki er flokkað eftir þyngd og má segja að glímurnar verða fyrir vikið mjög skemmtilegar því léttari keppendur þurfa að beita kænsku, tækni og hraða á móti þyngri keppendum sem alla jafna standa betur að vígi. Frábær árangur og mikil skemmtun.

Að lokum var sveitakeppni hvar þær stöllur Sara, Agla og Ella stigu fram og kepptu fyrir hönd Judofélags Suðurlands. Í úrslitum kepptu þær á móti sveit Judofélags Reykjavíkur og varð niðurstaðan sú að tvær glímur töpuðust og ein glíma sigruð. Niðurstaðan varð því silfur í Sveitakeppni sem var til fyrirmyndar.

Ljóst er að kvennajudo er í mikilli sókn á Suðurlandi og æfir Judofélag Suðurlands í World Class á Selfossi hvar aðstaðan er afar góð. Æfingar undanfarin ár eru nú farnar að skila miklum árangri og búa þessar stúlkur yfir styrk, úthaldi og bardagakænsku. Sara Nugig er sem stendur hársbreidd frá því að taka Svart belti eftir helgina og mun án efa taka það á komandi ári. Þjálfarar félagsins eru Arnar Freyr Ólafsson, Sara Nugig og Garðar Skaptason.

Félagð hvetur konur og karla á öllum aldri til að taka þátt og njóta góðs af starfsemi félagsins. Judo er frábær íþrótt eins og margar en með iðkun færðu sjálfsvörn í Bónus.

Nýjar fréttir