Miðvikudaginn 18. nóvember efna Harpa Rún Kristjánsdóttir skáldbóndi og Steinunn Sigurðardóttir skáld til upplestrarveislu í Eymundsson á Selfossi klukkan 17. Skáldsysturnar tala saman um nýútkomnar skáldsögur sínar. Harpa Rún les úr SKEPNUFÓLK og Steinunn úr sögu sem ber titilinn VEISLA ÞRJÚ. Báðar hafa þær fengið glimrandi viðtökur. Hér er smásýnishorn: Vilborg Davíðsdóttir um Skepnufólk: „Þetta er þannig bók sem stækkar heiminn, víkkar sjónarhornið og dýpkar skilninginn á mannskepnunni í öllum sínum breyskleika.“ Gísli Marteinn um Veislu þrjú: „Fullkomin jólabók! Stórskemmtileg.“
Harpa Rún gefur hér út aðra skáldsögu sína en hún hefur einnig skrifað leikrit, ljóð og sitthvað fleira. Enn spjallar hún um bændur, að þessu sinni fólk á miðjum aldri í ótilgreindri sveit sem tekst á við þær verstu búmannsraunir sem steðjað geta að – jafnframt því að vera manneskjur. Skepnufólk er fólk sem elskar skepnurnar sínar og skepnuna í sjálfu sér.
Veisla þrjú er fimmtánda skáldsaga Steinunnar en sú fyrsta, Tímaþjófurinn, kom út 1986. Veisla þrjú er sjálfstætt framhald af verðlaunasögunni BÓL sem kom út 2023. LínLín, söguhetjan, stendur frammi fyrir því að lifa, eftir að hafa mistekist að deyja. Nú fagnar hún nýju lífi sem er henni að óvörum fullt af gleði, ást og hlátri.
Léttar veitingar eru í boði og bækurnar á tilboði. Ef stuð leyfir mun Eymundsson jafnvel framlengja hefðbundinn opnunartíma.

