Matgæðingur vikunnar er Kristófer Logi Jóhannson.
Ég vil byrja á því að þakka Eiði fyrir að veita mér tækifæri til að koma einni af mínum uppskriftum á framfæri. Þó ég hafi gaman af því að hafa mikið fyrir minni matargerð ætla ég að grípa til einfaldrar pastauppskriftar sem ég nýti mér gjarnan þegar ég hef stuttan tíma til að græja mat.
Innihaldsefni:
• Spagetti Rummo 400 grömm
• Parmaskinka 200 grömm
• Parmesanostur
• Góð ólífuolía
• Chiafræ
Mér finnst alltaf gott að byrja á að finna til öll innihaldsefni áður en ég hef eldamennskuna, en þegar því er lokið rífur maður eða sker parmaskinkuna niður í smærri einingar eða hverja sneið í um það bil 5-6 hluta. Samhliða þessu hef ég alltaf suðu á spaghettíinu samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Að því loknu hitar maður pönnu og steikir skinkuna upp úr góðri ólífuolíu þangað til skinkan er orðin stökk. Þegar líður undir lok suðutímans á spaghettíinu er gott að fleyta einum bolla ofan af pastavatninu og taka til hliðar. Á meðan á steikingunni og suðunni stendur ríf ég niður einn bolla af parmesanosti.
Þegar parmaskinkan er tilbúin tek ég hana af pönnunni og legg til hliðar. Að loknum suðutímanum á spaghettíinu sigta ég vatnið af pastanu og set það á pönnuna með smá ólífuolíu án þess að þrífa pönnuna á milli en við erum að sækjast eftir bragðinu af skinkunni í pastað. Þá set ég parmesanostinn út á spaghettíið og bræði hann með pastavatninu en passa að nota ekki of mikið af því, við viljum að þetta verði creamy. Að lokum pipra ég svo létt yfir þetta og blanda skinkunni saman við. Ég ber þetta svo fram með parmesanosti og chiafræjum sem hver og einn getur toppað réttinn með eftir eigin smekk en chiafræin eru alger lykill til að gefa réttinum smá bit með mjúku pastanu.
Ef ég kýs að bjóða upp á þennan rétt um helgar þá býð ég gjarnan upp á gott rauðvín með þessu.
Mig langar að skora á vin minn Sigurð Örn Eiðsson en hann er matgæðingur af gamla skólanum sem lumar á ófáum sælkerauppskriftum.

