-0.3 C
Selfoss

Sjálfbærnivinnustofa í Fjölheimum

Vinsælast

Háskólafélag Suðurlands stendur fyrir sjálfbærnivinnustofu í Fjölheimum á Selfossi frá kl. 17:00–19:00, þriðjudaginn 10. nóvember. Þar gefst gestum á öllum aldri tækifæri til að fræðast um sjálfbærni, taka þátt í skapandi verkefnum og uppgötva hvernig litlar breytingar í daglegu lífi geta haft jákvæð áhrif á umhverfið.

Viðburðurinn er hluti af alþjóðlega Erasmus+ samstarfsverkefninu Roadmap to Sustainable Living, sem miðar að því að efla umhverfisvitund, hvetja fólk til sjálfbærari lífshátta.

Á vinnustofunni verður ýmislegt í boði. Gestir geta tekið þátt í bóka- og fataskiptimarkaði þar sem hægt verður að koma með 2–3 flíkur eða bækur og taka jafnmargt með sér heim. Einnig verður skemmtileg vinabandasmiðja þar sem þátttakendur fá að búa til vinabönd úr endurunnum textíl, kynning á Fab Lab, þrautir með sjálfbærniþema og dregið verður úr verðlaunapotti.

Kynning á Roadmap to Sustainable Living og sjálfbærnidagbókinni

Sama dag, frá kl. 13:00–18:00, verða Leiðarvísir að sjálfbærari lífsstíl og Dagbók til sjálfbærara lífs(sjálfbærnidagbókin) kynnt í samvinnu við Bókasafn Árborgar á Selfossi. Um er að ræða tvö verkfæri sem hafa verið þróuð í Erasmus+ verkefninu til að aðstoða fólk við að tileinka sér sjálfbærari lífsstíl. Þau innihalda hagnýtar hugmyndir, verkefni og leiðir til að skoða eigin neyslu og daglegar ákvarðanir með sjálfbærni að leiðarljósi. Gestir eru hvattir til að kynna sér þessi verkefni sem verða aðgengileg á bókasafninu í staðláni.

Öll eru hjartanlega velkomin og þátttaka er ókeypis!

Dagskrá þriðjudaginn 10. nóvember:

Kl. 13:00–18:00: Kynning á Leiðarvísi til sjálfbærari lífsstíls og á Dagbók til sjálfbærara lífs á bókasafninu.

Kl. 17:00–19:00: Sjálfbærnivinnustofa í Fjölheimum, Tryggvagötu 13 á Selfossi.

Börn velkomin með foreldrum og forráðamönnum.

Nýjar fréttir