7.3 C
Selfoss

Um 300 gestir á Bjórhátíð Ölverk

Vinsælast

Bjórhátíð Ölverk fór fram síðustu helgi í Hveragerði. Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin í Hveragerði. Líkt og síðustu ár var hátíðin afar vel sótt af gestum. Hátt í 300 manns létu sjá sig þrátt fyrir að talsverð rigning setti ákveðinn svip á hátíðina í ár.

Í ár voru það 32 framleiðendur sem mættu að kynna sig og sínar vörur á hátíðinni. Gestir máttu smakka allt frá bjór, kombucha, vín, gos, eimaða drykki, ís og osta víðs vegar af landinu með nokkrum erlendum framleiðendum.

„Það var mikið stuð og mikið dansað langt fram eftir kvöldi,“ segir Laufey Sif Lárusdóttir, einn eiganda Ölverks, í samtali við Dagskrána.

Ölverk pop-up matsala á staðnum sem naut mikillar vinsældar. Tónlistarflytjendur sem spiluðu að loknu drykkjarsmakki voru Mugison, Páll Óskar, FM Belfast dj og DJ Doddi Litli.

Meðfylgjandi myndir tók Dagný Dögg Steinþórsdóttir.
 

Nýjar fréttir