10.4 C
Selfoss

Ragnheiður Gröndal gestur stofutónleika á Eyrarbakka  

Vinsælast

Önnur útgáfa stofutónleikanna Söngvaskáld í stofunni verður haldin næsta sunnudag, 27. september. Ragnheiður Gröndal verður gestur Marínu Óskar á þessum notalegu tónleikum þar sem þær munu leika lög hvorrar annarrar og spjalla við áhorfendur.

Söngvaskáld í stofunni er tónleikaröð söngkonunnar Marínu Óskar og viðburðafyrirtækisins MX PROJECTS, þar sem Marína Ósk býður íslenskum söngvaskáldum heim í stofu, hvar þau flytja tónlist hvors annars, spjalla við áhorfendur og segja sögur.

Húseigendur þakka innilega hlýjar móttökur á fyrstu tónleikum tónleikaraðarinnar þann 13. september síðastliðinn, þar sem Hreimur Örn Heimisson kom í heimsókn. Tónleikarnir lukkuðust vel og stemmingin var vinaleg og ljúf.

Búast má við mjúkri og heimilislegri tónleikaupplifun, léttkitluðum hláturvöðvum, tónlistarlegri næringu og léttum veitingum í boði húseigenda. Húsið opnar 19:15 og tónleikar hefjast kl. 20:00. Áhorfendur velja sjálfir hvað þeir greiða í aðgangseyri.

Viðburðurinn er unninn með dyggum stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og Tónlistarsjóð. Markmið verkefnisins er að stuðla að samheldni samfélagsins sem og fjölbreyttu tónleikahaldi utan höfuðborgarsvæðisins.

Nýjar fréttir