Takk fyrir áskorunina! Ég er í mikilli framþróun sem kokkur þessa dagana og það er ekkert voðalega langt síðan ég fór að elda eitthvað annað en hafragraut eða pasta með tómatsósu. Ég er ekki skipulögð manneskja og mæli magn og tíma í uppskriftum sjaldan en hérna er minn uppáhaldsréttur þessa dagana (svona sirka) og hentar fyrir kannski 2-3 manns og er alveg fáránlega gott.
Chili- hunangsrækjur
Innihald:
500 g risarækjur
100 g smjör
1 chilli
3 hvítlauksrif
1 1/2 msk. hunang
1 msk. sojasósa
1/2 kreist sítróna
Salt og pipar
Aðferð:
Þurrkið af rækjunum. Bræðið smjör og steikið smátt skorinn chili og þrjú fínt söxuð hvítlauksrif. Setjið rækjurnar á pönnuna og bætið við hunangi, sojasósu og kreistið hálfa sítrónu yfir. Steikið rækjurnar í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Salt og pipar eftir smekk.
Lime og kóríander hrísgrjón
Innihald:
200 g jasmínhrísgrjón
2 msk. ólífuolía
1 hvítlauksrif
1 tsk. salt
300 ml vatn
1 lime
Kóríander
Aðferð:
Setjið ólífuolíu í pott og stillið á miðlungshita, skolið af hrísgrjónum og bætið við ásamt rifnu hvítlauksrifi. Steikið í u.þ.b. 2 mín. og bætið svo við vatni og salti og hækkið í hita þar til suða kemur upp, lækkið þá á lágan hita og látið malla þar til vatn er gufað upp. Saxið kóríander, kreistið lime og rífið limebörk og hrærið vel saman við hrísgrjónin og leyfið að standa í 5 mínútur áður en borið fram.
Ég vil þakka fyrir áskorunina, mikill heiður!
Ég ætla að fá að skora á vin minn Jón Karl Sigurðsson. Ég veit ekkert hvort hann sé góður kokkur en er mjög spenntur að sjá hvað hann ætlar að bjóða upp á!


