9.4 C
Selfoss

Fyrirmyndir heiðraðar – Umhverfisverðlaun Ölfuss 2026

Vinsælast

Nú síðsumars var ánægjulegt að fá tækifæri til að veita umhverfisverðlaun Ölfuss fyrir snyrtilegustu garða sveitarfélagsins. Verðlaunin eru veitt þeim íbúum sem með alúð, metnaði og natni leggja sitt af mörkum til að fegra nærumhverfi sitt og skapa fallegt og aðlaðandi samfélag. Fallegir og vel hirtir garðar setja ekki aðeins svip á einstök heimili heldur hafa einnig áhrif á heildaryfirbragð sveitarfélagsins. Þeir endurspegla umhyggju íbúanna fyrir umhverfi sínu og sýna hversu miklu máli það skiptir að hlúa að þeim stað sem við köllum heim. Við val á verðlaunagörðunum er horft til heildarmyndar, umhirðu, gróðurs, frágangs og þess hvernig garðurinn fellur að umhverfi sínu. Það er þó ekki síður metið hversu vel hefur tekist að skapa notalegt, fallegt og persónulegt útisvæði. Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum þeim fyrir framlag sitt til fallegra og snyrtilegra Ölfuss.

Umhverfisnefnd Ölfuss 2026

Verðlaunin hafa þegar verið veitt og er niðurstaða nefndarinnar eftirfarandi:

Eyjahraun 10. Sigríður Stefánsdóttir og Ragnar Óskarsson fengu viðurkenningu fyrir fallegan og snyrtilegan garð.
Eyjahraun 10. Einstaklega fallegur og snyrtilegur garður þar sem umhirða lóðar og húss er öll til fyrirmyndar og eigendum til mikils sóma. Þau hafa byggt upp og ræktað garðinn frá upphafi eða frá 1980 þegar þau fluttu í húsið.
Básahraun 22. Guðbjörg M. Kristjánsdóttir og Þorvaldur Þór Garðarsson fengu viðurkenning fyrir fallegan og snyrtilegan garð.
Básahraun 22. Mjög fallegur og snyrtilegur garður þar sem umhirða lóðar og húss er öll til fyrirmyndar og eigendum til mikils sóma. Skipulag garðsins er mjög flott og samspil timburs og hellulagnar skemmtilegt.
Dóróthea Róbertsdóttir og Richard Magnús Karlsson í Skálafell.
Einstaklega fallegur og skemmtilegur garður í dreifbýlinu. Allt umhverfi hússins til fyrirmyndar, eigendum hefur tekist mjög vel að láta palla, stíga, og gróður flæða vel saman sem gefur einstaka upplifun á lóðinni.

Nýjar fréttir