Selfyssingar urðu sl. föstudag Gatorade meistarar í knattspyrnu karla.
Eftir 3-1 sigur gegn Haukum í hörkuleik á Laugardalsvelli endurtóku Selfyssingar leikinn frá 2023.
Eysteinn Ernir Sverrisson jafnaði leikinn 1-1 á 26′ mínútu eftir að Haukar höfðu komist yfir. Frosti Brynjólfsson kom síðan okkar mönnum í 2-1 á 72′ mínútu.
Það var síðan markavélin Viðar Örn Kjartansson sem innsiglaði sigurinn á 93′ mínútu og 3-1 staðreynd.


