12.4 C
Selfoss

Skvísukvöld til styrktar Sigurhæða

Vinsælast

Þrír nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum, þær Aldís Stella, Jessis Solys og Klaudia Anna, standa fyrir Skvísukvöldi á Sviðinu í miðbæ Selfoss þann 17. september næstkomandi. Allur ágóði viðburðarins rennur til Sigurhæða, úrræðis fyrir konur sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á Suðurlandi.

Skvísukvöld, eins og nafnið kannski gefur til kynna, er ætlað konum 18 ára. Stelpurnar hafa undanfarið unnið að skipulagningu Skvísukvölds sem hluta af verklegu verkefni í náminu.

Fjölbreytt dagskrá á Sviðinu

Dagskrá kvöldsins er fjölbreytt.
„Okkur langaði að skapa skemmtilegt kvöld þar sem konur gætu komið saman, notið góðrar tónlistar og skemmtunar og átt notalega stund. Við vildum jafnframt vekja athygli á mikilvægu málefni sem snertir konur og láta ágóða kvöldsins renna til góðgerðarmála,“ segja stelpurnar í samtali við Dagskrána.

Stelpurnar segja gesti geta átt von á skemmtilegu og notalegu kvöldi. Guðrún Árný sér um tónlistina og Theodóra Guðnadóttir verður með uppistand. Einnig verða pop-up sölubásar, happdrætti með glæsilegum vinningum og léttar veitingar. Við komu geta gestir fengið áfengt eða óáfengt freyðivínsglas í boði Mekka og/eða gos í boði Ölgerðarinnar og barinn verður opinn. Húsið verður opnað klukkan 19:30 og dagskráin hefst klukkan 20:00.

Allur ágóði rennur til Sigurhæða

Góðgerðamálið er stór hluti Skvísukvöldsins en allur ágóði rennur til Sigurhæða, sem veita konum sem hafa orðið fyrir kynbundu ofbeldi stuðning, ráðgjöf og öruggt rými.

„Við ákváðum að láta allan ágóða renna til Sigurhæða vegna þess að málefnið snertir samfélagið allt og flest þekkjum við einhvern sem hefur verið í þessum sporum. Okkur finnst mikilvægt að fólk hafi aðgang að stuðningi, ráðgjöf og öruggu rými þegar á þarf að halda. Þess vegna vildum við styðja við það mikilvæga starf sem Sigurhæðir sinna.“

Þær leggja áherslu á að mikilvægt sé að fólk viti hvert hægt sé að leita þegar aðstoðar er þörf og að enginn þurfi að standa einn í slíkum aðstæðum.

Þær segja viðburði á borð við Skvísukvöld aðstoða við að vekja athygli á málefninu, gera starf Sigurhæða sýnilegra og stuðla að opnari umræðu.

„Við höfum jafnframt fundið fyrir mikilvægi málefnisins í styrktarleitinni, þar sem fyrirtæki sem ætluðu ekki að veita fleiri styrki yfir höfuð restina af árinu ákváðu að endurskoða afstöðu sína. Það sýnir hvað fólk er tilbúið að sameinast um góðan málstað og leggja sitt af mörkum,“ segja stelpurnar.

Að lokum

Stelpurnar vona að framlagið geti stutt við áframhaldandi starf Sigurhæða og hjálpað þeim að veita enn fleirum mikilvægan stuðning og ráðgjöf. Þær vonast jafnframt að sjá sem flestar

Þær Aldís, Jessis og Klaudia vilja að lokum þakka öllum þeim frábæru fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa aðstoðað og gert viðburðinn mögulegan.

„Við hvetjum allar konur 18 ára og eldri til að koma og eiga með okkur skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap og styðja um leið við mikilvægt starf Sigurhæða. Við hlökkum mikið til kvöldsins og vonumst til að sjá sem flestar! “

Nýjar fréttir