15 C
Selfoss

Golfklúbbur Selfoss vill halda Íslandsmótið í golfi 2032

Vinsælast

Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss, vill að Íslandsmótið í golfi verði haldið á Selfossi eftir nokkur ár og segir stefnt að því að völlurinn verði tilbúinn til að taka á móti stærsta móti landsins árið 2032 eða þar um bil. Kylfingur.is greinir frá.

Miklar breytingar hafa átt sér stað á Svarfhólsvelli á undanförnum árum og uppbygging vallarins heldur áfram. Völlurinn er nú 14 holur en unnið er að fimm nýjum holum og stefnir í að hann verði fullbúinn 18 holu völlur á næstu árum.

Hlynur segir í samtali við Kylfing að markmiðið sé að geta haldið Íslandsmótið á Selfossi þegar uppbyggingunni lýkur. Nýjar brautir hafa meðal annars verið lagðar í tengslum við breytingar á landi golfklúbbsins vegna nýrrar Ölfusárbrúar og mun Ölfusá leika stórt hlutverk á nýjum hluta vallarins.

Meðal nýju holanna verður rúmlega 600 metra löng par 5 hola sem verður ein sú lengsta á Íslandi. Framkvæmdirnar eiga að gera Svarfhólsvöll enn fjölbreyttari og skapa aðstæður til að taka á móti stærri golfmótum í framtíðinni.

Hlynur var sjálfur meðal keppenda á Íslandsmótinu í golfi á Korpu um síðustu helgi og lék þar á sínu 28. Íslandsmóti í röð. Hann hafnaði í 31. sæti og hefur á öllum þessum árum komist í gegnum niðurskurð mótsins.

Nýjar fréttir