11.7 C
Selfoss

Spennandi framkvæmdir í Grímsnes- og Grafningshreppi

Vinsælast

Fjölbreyttar framkvæmdir standa nú yfir í Grímsnes- og Grafningshreppi. Unnið er meðal annars að endurbótum við Kerhólsskóla, byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar á Borg, gatnagerð og uppbyggingu göngu- og hjólastíga.

Miklar breytingar standa yfir á leikskólalóð Kerhólsskóla. Lóðin er stækkuð, yfirborð endurnýjað og nýr kastali ásamt fjölbreyttum leiktækjum settur upp. Grjótgás og Jóhann Helgi & co sjá um framkvæmdirnar og er stefnt að verklokum í ágúst.

Framkvæmdir standa yfir á leikskólalóð Kerhólsskóla þar sem meðal annars eru sett upp ný leiktæki. Mynd: gogg.is.
Leikskólalóðin við Kerhólsskóla tekur miklum breytingum en stefnt er að verklokum í ágúst. Mynd: gogg.is.

Samhliða framkvæmdunum á leikskólalóðinni er hafið niðurrif á efri hæð Kerhólsskóla, þar sem stjórnsýsla sveitarfélagsins var áður til húsa. Rýmið hefur verið endurhannað með þarfir skólans í huga og stendur til að útbúa þar nýjar skólastofur og önnur rými fyrir skólastarfið. Framkvæmdin verður boðin út á næstunni.

Framkvæmdir við nýja björgunarmiðstöð á Borg eru einnig komnar vel af stað. HR smíði vinnur að verkinu og er undirbúningur fyrir sökkla aðalbyggingarinnar hafinn. Gert er ráð fyrir að burðarvirki frá Límtré Vírneti komi á verkstað í september og að reising hússins hefjist í kjölfarið. Nýja björgunarmiðstöðin á að bæta verulega aðstöðu viðbragðsaðila á svæðinu.

Framkvæmdir við nýja björgunarmiðstöð á Borg eru í fullum gangi. Mynd: gogg.is.
Unnið er að undirstöðum nýrrar björgunarmiðstöðvar en reising hússins á að hefjast í haust. Mynd: gogg.is.

Þá vinnur Jarðtækni að uppbyggingu nýrrar götu og göngustíga við hverfið á Borg. Þar verður meðal annars gerð ný tenging við Biskupstungnabraut og gatan Skógartún lögð. Nýjar lóðir við götuna verða auglýstar á næstunni. Einnig verður áfram unnið með blágrænar ofanvatnslausnir auk þess sem göngustígar og lýsing í nýja hverfinu verða fullgerð.

Undirbúningur að frekari gerð hjóla- og göngustíga í sveitarfélaginu stendur jafnframt yfir og er gert ráð fyrir að þær framkvæmdir hefjist í haust. Verkefnin eru liður í áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins og eiga að bæta aðstöðu, þjónustu og öryggi íbúa.

Nýja gatan Skógartún og göngustígar eru hluti af áframhaldandi uppbyggingu á Borg. Mynd: gogg.is.

Nýjar fréttir