11.7 C
Selfoss

Umhverfisviðurkenningar Árborgar afhentar

Vinsælast

Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Árborgar afhenti á dögunum umhverfisviðurkenningar ársins 2026. Fjöldi tilnefninga barst frá íbúum sveitarfélagsins og voru viðurkenningar veittar í fimm flokkum.

Rauðholt hlaut viðurkenningu sem fallegasta gata sveitarfélagsins. Gatan hefur nýlega verið endurgerð með gönguleiðum, hjólastígum og gróðri og þótti skera sig úr fyrir snyrtilegt og fallegt yfirbragð í grónu umhverfi.

Sjávargata Villa við Búðarstíg 19c á Eyrarbakka var valið fallegasta fyrirtækið. Þar er rekin ferðaþjónusta með gistiaðstöðu fyrir hópa. Mikill metnaður hefur verið lagður í frágang hússins, lóðarinnar og aðkomunnar en húsið var tekið í notkun síðsumars árið 2025.

Viðurkenningu fyrir fallegasta garðinn hlutu Þorvarður Hjaltason og Ólafía Sigurðardóttir í Sigtúni 7 á Selfossi. Garðurinn var valinn úr hópi margra frambærilegra garða og hefur vakið athygli fyrir fallega og gróna lóð í eldra hverfi bæjarins.

Tryggvagata 10–12 var valið fallegasta fjölbýlið. Húsið er nýbyggt og þótti frágangur lóðarinnar til mikils sóma. Sérstaklega var horft til þess metnaðar sem lagður hefur verið í að fella húsið og lóðina að nærliggjandi umhverfi.

Að lokum hlaut Örn Óskarsson, formaður Skógræktarfélags Selfoss, umhverfisviðurkenningu Árborgar fyrir framlag sitt til umhverfismála. Örn hefur um langt skeið verið í forsvari fyrir félagið og uppbyggingu Hellisskógar, sem hefur þróast í fjölbreytt og vinsælt útivistarsvæði sem nýtist gestum allt árið.

Nýjar fréttir