Um liðna helgi komust fimm sunnlenskir ökumenn á verðlaunapall í annarri kvartmílukeppni sumarsins. Haukur Baldvinsson varð annar í KC 9,90 flokki á Toyota Supra; Ingimar Baldvinsson sigraði í KD 10,90 flokki á Chevrolet Camaro og Arnkell Ragnar Ragnarsson sigraði í KF 12,90 flokki á Plymouth Barracuda. Þremenningarnir eru allir frá Selfossi. Þá sigraði Natthapong Khamphan, frá Hellu, á BMW í KG 13,90 flokki og Flúðamaðurinn Gunnlaugur Emilsson varð annar í KG 12,90 flokki á Jeep Cherokee SRT Hemi. Gunnlaugur keppti fyrst í kvartmílu 1979 og varð margfaldur Íslandsmeistari í kvartmílu og sandspyrnu á árum áður.
Síðasta kvartmílukeppni Íslandsmótsins er áætluð 5. september. Hún verður spennandi fyrir þessa sunnlensku ökuþóra vegna þess að fjórir þeirra geta mögulega orðið Íslandsmeistarar í sínum flokkum. Það verður því hart barist á kvartmílubrautinni við Straumsvík eftir nokkrar vikur.


