Miðvikudaginn 12. ágúst gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með einum magnaðasta náttúruviðburði ársins þegar sólmyrkvi verður sýnilegur frá Íslandi. Þótt Reykjanes sé besti staðurinn á landinu til að upplifa myrkvann verður Selfoss ekki langt undan, þar sem um 99,9% af sólinni hverfur á hápunkti myrkvans.
Í tilefni dagsins stendur veitingastaðurinn Röstí fyrir sérstökum sólmyrkvaviðburði þar sem gestum gefst kostur á að upplifa viðburðinn saman í skemmtilegri stemningu.
„Þetta er viðburður sem við viljum alls ekki missa af,“ segir Margrét, eða Vísinda Magga, einn af eigendum Röstí.
„Já, auðvitað er Reykjanes besti staðurinn til að horfa á sólmyrkvann, en við erum bara á næstbesta staðnum þetta skiptið. Fyrir okkur skiptir mestu máli að bjóða íbúum Selfoss og nærsveit upp á skemmtilega upplifun hér í miðbænum. Svona augnablik eru miklu skemmtilegri þegar fólk upplifir þau saman.“
Magga segir að þau ætla að gefa sólmyrkvagleraugu sem uppfylla alþjóðlega ISO-staðla, svo gestir okkar geti fylgst með sólmyrkvanum á öruggan hátt.
En hvað ef það verður skýjað?
„Þá mætum við bara í miðbæinn, fáum okkur ískaldan Thule Lite og komum með góða skapið. Veðrið ræður kannski því hvað við sjáum mikið, en það ræður ekki stemningunni.“
Allir þeirsem kaupa sér Thule Lite á Röstí, Miðbar eða Risinu ókeypis sólmyrkvagleraugu, á meðan birgðir endast.

