10.3 C
Selfoss

Allir velkomnir á Hamingjuna við hafið

Vinsælast

Bæjarhátíðin Hamingjan við hafið hófst með pomp og prakt í Þorlákshöfn þriðjudaginn 4. ágúst og halda hátíðarhöldin alveg fram til 9. ágúst. Eins og áður er dagskráin fjölbreytt og höfðar til allra aldurshópa. Allir opinberir viðburðir á vegum Sveitarfélagsins Ölfuss eru gjaldfrjálsir og öllum opnir.

Fimmtudaginn 6. ágúst hefjast hátíðarhöldin með sundlaugarpartíi og á sama tíma verður fjölskyldusamvera, sögustóll og prjónahittingur í Lautinni í Skrúðgarðinum. Fjörugufan býður upp á gusuupplifun í Skötubót klukkan 17 og aftur klukkan 19. Klukkan 18 verður grill og harmonikkuball á 9unni. Ferðamálafélag Ölfuss stendur fyrir menningar- og sögugöngu. Deginum lýkur með tónlistarveislu í garðinum hjá Róberti og Guðlaugu við Skálholtsbraut 11.

Föstudaginn 7. ágúst hefst dagskráin með Litahverfagöngu klukkan 19:30. Seinna um kvöldið verður sannkölluð tónlistarveisla þegar Hr. Hnetusmjör, Emmsjé Gauti, Júlí Heiðar, Kristmundur Axel og Sveitamenn stíga á svið og sjá til þess að stemningin nái hámarki.

Laugardaginn 8. ágúst verður stór fjölskyldudagur í Skrúðgarðinum. Boðið verður upp á glæsilega barnadagskrá með Lalla töframanni, BMX Bros, Línu Langsokk og Sirkus Íslands, söngkeppni barnanna, street ball, hoppuköstulum, markaðsstemningu, matarvögnum og fjölmörgu öðru. Um kvöldið taka við stórtónleikar með Bríeti, Stebba Hilmars, Audda og Steinda og ball sem enginn vill missa af.

Nýjar fréttir